Fótbolti

Gullmolinn Lewandowski

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Ansi mörg félög vilja tryggja sér þjónustu Pólverjans Lewandowski enda hefur hann farið mikinn með Dortmund.nordicphotos/getty
Ansi mörg félög vilja tryggja sér þjónustu Pólverjans Lewandowski enda hefur hann farið mikinn með Dortmund.nordicphotos/getty
Stórleikur kvöldsins í Meistaradeild Evrópu er leikur Real Madrid gegn Borussia Dortmund. Spánarmeistararnir berjast þar um efsta sæti D-riðilsins gegn þýska meistaraliðinu.  Árangur þýska liðsins hefur vakið mikla athygli og sérstaklega þar sem liðið var nánast gjaldþrota árið 2004.

Margar ástæður lágu þar að baki, en forsvarsmenn félagsins tóku mikla áhættu á leikmannamarkaðinum og gerðu risasamninga sem reyndist erfitt að standa við. Staða félagsins var það slæm árið 2004 að Dortmund fékk lánaða peninga frá forsvarsmönnum Bayern München, eða sem nemur 330 milljónum kr. Upphæðin sem Dortmund fékk að láni var aðeins dropi í hafið en félagið skuldaði á þessum tíma um 33 milljarða kr.

Thomas Tress, fjármálastjóri þýska meistaraliðsins, kom til starfa hjá Dortmund þegar fjárhagur félagsins var í tómu tjóni. „Við lærðum af mistökunum. Það er ekki hægt að eyða peningum sem eru ekki til. Við getum ekki keppt við risalið á borð við Barcelona eða Bayern á markaðnum," sagði Tress í blaðaviðtali.

Bestu leikmenn Dortmund eru ofarlega á innkaupalista stórliða í Evrópu. Framherjinn Robert Lewandowski er „gullmolinn" sem öll lið vilja fá í sínar raðir. Þessi 24 ára gamli Pólverji er með lausan samning árið 2014. Og það má búast við því hann verði seldur, jafnvel í janúar.

Dortmund hafnaði rúmlega 3,2 milljarða kr. tilboði frá Man. United í Lewandowski s.l. sumar eða sem nemur 16 milljónum punda.

Lewandowski hefur skorað 33 mörk fyrir Dortmund í 75 leikjum frá því hann kom til félagsins árið 2010 frá Poznan í Póllandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×