Gagnrýni

Lói fyrir lengra komna

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Bíó. The Amazing Spider-Man. Leikstjórn: Marc Webb. Leikarar: Andrew Garfield, Emma Stone, Rhys Ifans, Denis Leary, Campbell Scott, Irrfan Khan, Martin Sheen, Sally Field, Chris Zylka.



Það eru ekki nema tíu ár liðin frá frumsýningu fyrstu myndarinnar í þríleik leikstjórans Sams Raimi um Köngulóarmanninn. Sú sería var á köflum ágæt en leið fyrir lélegar tölvubrellur og það að aðalleikarinn hentaði ekki í hlutverkið. Nú er því byrjað upp á nýtt og er það leikstjórinn Marc Webb (ekki grín) sem situr við stjórnvölinn. Aðdáendur þessarar langlífu myndasöguhetju fá að fylgjast með því eina ferðina enn hvernig hann varð eins og hann er, en í þetta sinn eiga þeir von á óvæntum glaðningi.

Sköpunarsaga Lóa er nefnilega þrælvel uppbyggð og Andrew Garfield er fullkominn í hlutverk Peters Parker. Emma Stone er sömuleiðis sannfærandi sem hin 17 ára Gwen Stacy, og í raun er leikaraliðið eins og það leggur sig í fantagóðum gír. Það er ekki fyrr en hasarinn hefst fyrir alvöru sem myndin misstígur sig. Eðlumaðurinn er ferkantað og klunnalegt illmenni og seinni hálfleikur The Amazing Spider-Man er mun meiri skrímslamynd en nokkurn tímann ofurhetjumynd. Þá er frágangi lausra enda einnig ábótavant, þó mig gruni reyndar að einhverjir þeirra verði leystir í framhaldsmyndum.

Það bendir samt ýmislegt til þess að Köngulóarmaðurinn eigi bjarta framtíð fyrir sér á þessum trausta grunni sem hér er byggður. Brellurnar eru fyrsta flokks og brandararnir til staðar. Það sem skiptir þó lykilmáli er að Lói er loksins orðinn bíóhetja sem haldandi er með. Sorrí Tobey Maguire, en nú sést það enn betur hvað þú varst lélegur Spædermann.

Niðurstaða: Skref í rétta átt fyrir Köngulóarmanninn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×