Tónlist

Þreföld afmælis-útgáfa kemur út

Ragnhildur Gísladóttir og Egill Ólafsson úr myndinni Með allt á hreinu.
Ragnhildur Gísladóttir og Egill Ólafsson úr myndinni Með allt á hreinu.
Astralterta, þrjátíu ára afmælis-útgáfa plötunnar Með allt á hreinu, kemur út 4. október í veglegum umbúðum.

Fyrsta upplag útgáfunnar verður þrefalt. Þar verður upphaflega platan endurhljóðblönduð, sextán laga aukaplata með lögunum sem heyrðust lítið og jafnvel ekkert í myndinni og svo kvikmyndin vinsæla Með allt á hreinu í leikstjórn Ágústs Guðmundssonar.

36 blaðsíðna bæklingur fylgir með útgáfunni með öllum lagatextunum og fróðleiksmolum um hvert einasta lag. Meðal áhugaverðra laga á aukaplötunni er prufuupptaka af Úti í Eyjum, upphaflega upptakan af Taktu til við að tvista sem var ekki notuð í myndinni, og Hjalti hörkutól eftir Jakob Frímann Magnússon sem var ekki heldur notað.

„Við erum búnir að spá í það í mörg ár að gera þetta. Núna var það ákveðið í tilefni þess að Stuðmenn eru að koma saman og fagna þessu afmæli með tónleikum í Hörpunni,“ segir Höskuldur Höskuldsson hjá útgáfunni Senu. „Það er vandað vel til verka enda erum við búnir að liggja yfir þessu í allt sumar.“

Upphaflega platan hefur selst í hátt í tuttugu þúsund eintökum síðan hún kom út 15. desember 1982. Meðal þekktustu laga hennar eru Íslenskir karlmenn, Ekkert mál, Ástardúett og Slá í gegn.-fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.