Handbolti

Stefán skoraði meira en allt HC Mojkovac liðið - myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Daníel
Haukar fóru létt með HC Mojkovac frá Svartfjallalandi á Ásvöllum í kvöld í fyrri leik liðanna í fyrstu umferð EHF-keppninnar í handbolta og það er nánast formsatriði að spila seinni leikinn á morgun.

Haukar unnu leikinn mð 20 marka mun, 32-12, og markahæsti leikmaður Haukar, Stefán Rafn Sigurmannsson, skoraði marki meira en allt HC Mojkovac liðsins.

Daníel Rúnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á leik Haukar á Ásvöllum í kvöld og náði þessum skemmtilegu myndum. Myndirnar má sjá í albúminu hér að neðan. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella á þær.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×