Lífið

Tilbúinn í fleiri börn

Fótboltakappinn vill endilega eignast fleiri börn með Victoriu Beckham.
Fótboltakappinn vill endilega eignast fleiri börn með Victoriu Beckham.
Fótboltakappinn og fyrirsætan David Beckham vill eignast fleiri börn. Hann á nú þegar fjögur með eiginkonu sinni Victoriu, eða synina Brooklyn, Romeo, Cruz og dótturina Harper, sem er tíu mánaða.

„Við erum svo lánsöm að eiga fjögur heilbrigð börn. Það væri frábært að bæta við einu eða tveimur í viðbót en ég veit ekki hvort Victoria sé tilbúin í tvö. Það væri alla vega gaman að eignast eitt í viðbót,“ sagði Beckham í viðtali í sjónvarpsþættinum This Morning.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×