Lífið

Stikla fyrir nýja ís­lenska grínþætti: „Þetta er ó­geðs­lega fyndið“

Máni Snær Þorláksson skrifar
Fyrsti þátturinn er frumsýndur á Stöð 2 í ágúst.
Fyrsti þátturinn er frumsýndur á Stöð 2 í ágúst. Vísir

Ný og spennandi grínþáttasería er væntanleg á Stöð 2 á næstunni. Þættirnir fjalla um vini sem ákveða að kaupa subbulegan bar sem er við það að fara á hausinn.

Þættirnir heita Flamingó bar en í þeim reyna vinirnir Bjarki og Tinna Olsen að breyta ímynd barsins og snúa rekstrinum við. Þau gera það ásamt breyskum starfsmönnum en vafasamir fastagestir og óvæntar uppákomur eiga eftir að gera þeim lífið leitt.

Hér fyrir neðan má sjá stiklu fyrir þættina.

Klippa: Flamingó bar - stikla

Um er að ræða sex þátta seríu sem er víst bæði sprenghlægileg og með hjarta. Aron Ingi Davíðsson og Birna Rún Eiríksdóttir leikstýra og skrifa einnig handrit ásamt Guðmundi Einari, Bjarna Snæbjörnssyni, Telmu Huld Jóhannesdóttur, Björk Guðmundsdóttur og Vilhelm Neto.

„Við erum að deyja úr spenningi. Ég er buin að fá að sjá nokkur brot úr nokkrum senum og þetta er algjört kast. Þetta er ógeðslega fyndið,“ segir Björk, sem fer einnig með eitt aðalhlutverkanna, í samtali við fréttamann.

Gaman að gera grín með góðum vinum

Hópurinn sem kemur að þáttunum séu góðir vinir og að það hafi verið gaman að fá að vinna þá saman.

„Þetta var smá eins og að vera í sumarbúðum með bestu vinum sínum að gera grín saman, þannig ég hefði ekki getað óskað mér betra ferli.“

Þá segist hún ekki hafa trú á öðru en að þættirnir eigi eftir að fá góðar viðtökur. „Við erum náttúrulega öll ótrúlega fyndin þannig ég hugsa að þetta muni bara slá í gegn.“

Tökumaður þáttanna er Anton Kristensen, leikmynd gerir Sara Blöndal, Magnús Ómarsson sér um hljóðhönnun og Heimir Bjarnason og Katrín Briem sjá um klippingu. Studio Fin gerir grafík, markaðsefni og VFX.

Þættirnir eru væntanlegir þann 23. ágúst næstkomandi á Stöð 2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×