Lífið

Deila visku sinni um næringu og hlaup í bók

Næringarfræðingarnir Fríða Rún Þórðardóttir og Steinar B Aðalsteinsson skrifuðu bókin Næring hlauparans sem kom út fyrir helgi.
Næringarfræðingarnir Fríða Rún Þórðardóttir og Steinar B Aðalsteinsson skrifuðu bókin Næring hlauparans sem kom út fyrir helgi. Fréttablaðið/Anton
„Þetta samstarf hefur gengið mjög vel og aldrei að vita nema við stefnum á frekari landvinninga á næstunni," segir næringarfræðingurinn og hlauparinn Steinar B. Aðalbjörnsson sem nýverið gaf út bókina Næring hlaupara – vikan í kringum keppnishlaup ásamt næringarráðgjafanum og hlauparanum Fríðu Rún Þórðardóttur.

Bókin fjallar á einfaldan máta um það hvað hlauparar, og aðrir sem stunda úthaldsgreinar, þurfa að leggja áherslu á til að nærast vel milli æfinga og fyrir keppni til að ná sem bestum árangri.

„Í bókinni er meðal annars hægt að lesa um hvernig best er að ná skjótri endurheimt, betri æfingum og aukinni vellíðan. Þar er að finna leiðbeiningar um undirbúninginn fram að keppnishlaupi, í hlaupinu sjálfu og eftir hlaupið. Allt leiðbeiningar sem ættu að reynast úthaldsgreinafólki vel við að eiga góðan hlaupaferil, draga úr hættu á álagseinkennum og þreytu," segir Fríða Rún sem meðal annars starfar sem næringarráðgjafi á Landspítalanum. Hún og Steinar hafa bæði lagt að baki ófáa kílómetrana við æfingar fyrir ýmis keppnishlaup og eru því uppfull af visku og reynslu.

Þau hafa ákveðnar útskýringar á því af hverju hlaupæði hafi gripið þjóðina en hlaup eru bæði ódýr og góð leið til þjálfa líkamann. „Ég man þá tíð þegar hlaup þóttu hallærisleg og nánast í hvert sinn sem ég fór út að hlaupa kallaði einhver á eftir mér „1-2-1-2". Þá hugsaði ég einmitt „bíðið bara" og viti menn nú eru hlaup hreyfing fjöldans og ótrúlegasta fólk farið að hlaupa og keppa," segir Fríða Rún. Hægt er að fylgjast með og sjá hvar Næring Hlauparans – vikan í kringum keppnishlaup er fáanleg á Facebook síðunni Facebook.com/NaeringHlaupara.

-áp






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.