Skoðun

Aukning þorskafla hefur jákvæð áhrif

Steingrímur J. Sigfússon skrifar
Stofnvísitala þorsks hækkar

Samkvæmt upplýsingum Hafró hefur stofnvísitala þorsks hækkað fimmta árið í röð og þar með ekki verið hærri frá 1985. Hækkun vísitölunnar undanfarin ár má einkum rekja til þess að æ meira hefur fengist af stórum þorski og hélst sú þróun áfram í ár. Fyrsta mat á 2011 árgangi þorsks bendir til að hann sé á meðal stærstu árganga frá 1985. Hann kemur í kjölfar lítils árgangs frá 2010, en árgangarnir frá 2008 og 2009 hafa mælst yfir meðallagi. Meðalþyngd þorsks eftir aldri hefur farið hækkandi undanfarin ár og er nú um og yfir meðaltali hjá flestum aldurshópum. Gott holdafar þorsksins undanfarin ár er í samræmi við það að meira hefur fengist af loðnu í þorskmögum og var loðna langmikilvægasta bráð þorsksins eins og títt er á þessum árstíma.

Langtímasýn og ábyrgðar veiðar

Margt og mikið hefur verið skrifað um það hvernig hámörkun auðlindar sjávar, fiskistofnanna okkar, sé best tryggð. Að mínu mati eru sjónarmið langtímahagsmuna lykilatriði. Annars vegar vegna sjálfbærni fiskistofnanna, vaxtar og viðgangs, þeirra en hins vegar vegna framtíðarhagsældar okkar samfélags. Samþætting efnahagslegra sjónarmiða annars vegar og verndarsjónarmiða hins vegar er í þessu samhengi áhugavert viðfangsefni. Of oft er að mínu viti litið svo á að hér sé um andstæða póla að ræða. Ég held að efnahagsleg- og verndarsjónarmið geti farið vel saman eins og nú sést á uppbyggingu þorskstofnsins.

Betri aflabrögð – minni sóknarkostnaður

Borðleggjandi er að við hóflega nýtingu nást efnahagsleg og rekstrarleg markmið betur en ef stofnar eru veiddir of stíft. Það helgast af því að þannig verða sveiflur í afla minni og þar með búa útgerð og vinnsla við meiri stöðugleika en ella. Með hóflegri sókn í þorskveiðum undanfarin ár hefur nú fengist mikill efnahagslegur ávinningur í lægri útgerðarkostnaði, ekki síst minni eldsneytiskostnaði, sem sannarlega hefur farið vaxandi á síðustu árum. Minni fyrirhöfn við veiðar á þorski hefur komið sér vel fyrir atvinnugreinina undanfarið. Nýtingarstefna sú sem mörkuð hefur verið fyrir þorskveiðar við Ísland miðast við að nýta stofninn með því veiðiálagi sem mun leiða til hámarksafraksturs til lengri tíma litið og vera jafnframt í samræmi við alþjóðlegar kröfur um varúðarsjónarmið. Því er mikilvægt að fylgja vel fyrirfram markaðri stefnu í okkar þorskveiðum og huga að svipaðri stefnumótun í öðrum fiskistofnum þar sem því verður við komið. Skynsöm nýtingarstefna er forsenda þess að íslenskur sjávarútvegur blómstrar og samstaða um þá stefnu tryggir hagsæld þjóðar. Aukinn afli í þorski mun hafa jákvæð áhrif á þróun efnahagsmála hér á landi á þeim tíma þegar mikið liggur við.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×