Lífið

Ég bið ekki um mikið, segir Ásdís um draumaprinsinn

Fatnaður Ásdísar: Júník Smáralind
Fatnaður Ásdísar: Júník Smáralind myndir/arnold björnsson
Fyrirsætan Ásdís Rán Gunnarsdóttir skildi nýverið við eiginmann sinn og barnsföður, knattspyrnumanninn Garðar Gunnlaugsson. Þau hófu sambúð fyrir níu árum og eiga saman börnin Hektor 6 ára og Victoriu Rán 5 ára. Ásdís er jákvæð og horfir björtum augum fram á við.

Aðspurð í Lílfinu, fylgiblaði Fréttablaðsins í dag, hvort hún geti hugsa sér að hleypa öðrum manni inn í líf sitt og orðið ástfangin á ný svarar Ásdís: Já, já. Það eru svo margir ótrúlega góðir drengir í boði fyrir mig það er alveg það síðasta sem ég hef áhyggjur af. Ég var ekki lengi að átta mig á því. Nú vil ég bara vera ein í einhvern tíma, njóta lífsins og leika mér en maður svo sem stjórnar því ekki þegar ástin ber að dyrum þó að það sé ekki á planinu hjá mér.

Hvaða kosti þarf maðurinn sem fangar hjarta þitt að bera? Ég bið ekki um mikið. Hann þarf að vera góður, myndarlegur, þokkafullur, klár, ævintýramaður sem elskar börn. Hann verður vissulega að hafa sterk bein til að standa við hlið mér og þarf auð­vitað að elska að tríta mig eins og prinsessuna sína.

Framtíðarplön þín. Ætlar þú að flytja aftur heim til Íslands eða vera lengur í Búlgaríu? Ég ætla að vera í Búlgaríu eins og er í einhvern tíma en ég reikna með að flytja heim á einhverjum tímapunkti út af börnunum fyrst aðstæðurnar eru svona en annars hefði ég ekki verið á leiðinni heim á næstunni.

Meðfylgjandi má sjá myndasyrpu sem Arnold Björnsson ljósmyndari tók af Ásdísi fyrir Lífið.

Lífið á Facebook.

Lífið í Fréttablaðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×