Veiði

Endurheimtur seiða betri en í fyrra

Trausti Hafliðason skrifar
Lax dreginn á land í Eystri Rangá.
Lax dreginn á land í Eystri Rangá. Mynd / Lax-á
Sjötíu laxar veiddust í Eystri Rangá á sunnudaginn. Veiði er áfram góð í Affallinu og Þverá í Fljótshlíð og endurheimtur seiða betri en í fyrra.

Einar Lúðvíksson, leigutaki ánna, segir að eftir flóðin í byrjun ágúst, þegar Eystri Rangá litaðist, hafi veiðin verið dræm í um viku.

"Þetta er aftur á móti búið að ganga ágætlega síðan þá. Það veiddust til dæmis sjötíu laxar í Eystri á sunnudaginn sem verður að teljast mjög gott," segir Einar og bætir því við að endurheimtur seiða hafi verið betri í sumar en í fyrra.

Einar segir veiðina í Affallinu hafa verið góða. Hollin séu að fá þetta 10 til 30 laxa og allt stefni í að áin fari í 600 laxa í sumar sem er töluvert betra en í fyrra þegar tæplega 500 laxar veiddust. Sumarið 2010 var reyndar ótrúlegt en þá veiddust ríflega 1.000 laxar í Affallinu en þar er veitt á fjórar stangir.

Veiði í Þverá í Fljótshlíð er nú þegar orðinn miklu betri en í fyrra. Á miðvikudaginn fyrir viku voru 170 laxar komnir á land en í fyrra var heildarveiðin 119 laxar. Líkt og í Affallinu var veiðin mjög góð í Þverá sumarið 2010 en þá veiddust 303 laxar í ánni.

"Síðasta holl í Þverá var með 15 laxa þannig að veiðin er bara fín," segir Einar. Eins og með Eystri segir Einar að endurheimtur seiða séu betri í Affallinu og Þverá í sumar en þær voru síðasta sumar.

trausti@frettabladid.is






×