Skoraði viljandi sjálfsmark og tók 50 milljónir fyrir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. apríl 2012 14:00
Nýjasti sökudólgurinn í stóra svikamálinu í kringum hagræðingu úrslita í ítalska fótboltanum er Atalanta-maðurinn Andrea Masiello en hann var handtekinn í gær grunaður um að hafa þegið dágóða upphæð fyrir að skora viljandi í eigið mark. La Repubblica segir frá því að Andrea Masiello hafi þegið 300 þúsund evrur eða meira en 50 milljónir íslenskra króna fyrir að skora í eigið mark í leik með Bari á móti Lecce í ítölsku b-deildinni veturinn 2009-10. Masiello hefur margoft lýst því yfir að hann sé tilbúinn að aðstoða lögregluna í að upplýsa þetta mál en nú hefur hann skyndilega breyst úr vitni í sökudólg. Bari var fallið fyrir leikinn en Lecce hélt sæti sínu með því að vinna umræddan leik 2-0. Það stendur einnig yfir rannsókn á leik Bari á móti Udinese í maí 2010. Það er hægt að sjá svipmyndir frá leiknum með því að smella hér fyrir ofan en sjálfsmarkið hans Andrea Masiello kemur strax í upphafi myndbandsins. Cristiano Doni og Giuseppe Signori hafa báðir verið dæmdir fyrir aðkomu sína að hagræðingu úrslita í ítalska fótboltanum og Atalanta missti sex stig vegna málsins sem hefur tengt anga sína í gegnum neðri deildirnar á Ítalíu.
Ítalski boltinn Mest lesið Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Handbolti Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Íslenski boltinn Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Íslenski boltinn Bruno til bjargar Enski boltinn Damir á leið til Asíu Íslenski boltinn Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri Fótbolti Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Enski boltinn „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Körfubolti Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Enski boltinn Ísak hættur með ÍR Körfubolti Fleiri fréttir Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Bruno til bjargar Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Kristófer áfram í Kópavogi Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Ödegaard strax aftur heim Lampard sótti um starfið hjá Coventry Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri Liverpool langlíklegast til að verða meistari samkvæmt ofurtölvunni „Eitthvað sem maður mun muna eftir alla ævi“ Hlín fór á kostum og finnur fyrir áhuga: „Hef ekki tekið ákvörðun“ Hareide segir Ødegaard milli steins og sleggju Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Lineker hættir með Match of the Day eftir tímabilið Elanga ekki í landsliðshóp Svía og neitar að svara þjálfaranum Nkunku til sölu þrátt fyrir að vera markahæstur Pogba við það að rifta samningi sínum við Juventus Nistelrooy yfirgefur Man United með tilkomu Amorim Fékk símtal frá Arteta en bætti Ödegaard í hópinn Í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að kýla dómara Myndband sýnir dómara urða yfir Liverpool og kalla Klopp kuntu Hlín og Guðrún báðar tilnefndar: „Það er engin eins og hún“ Sjá meira