Tónlist

Vonast til að feta í fótspor Of Monsters and Men

Bjarki Ármannsson skrifar
Hljómsveitin Vök stígur þrisvar á svið á troðfullri utandagskrá Iceland Airwaves í dag. Þetta er fyrsta tónleikahátíð sveitarinnar sem vann Músíktilraunir nú í vor. Hljómsveitina skipa þau Margrét Rán Magnúsdóttir, Andri Már Enoksson og nýliðinn Ólafur Alexander Ólafsson.

„Við erum mjög spennt fyrir deginum,“ segir Margrét Rán. „Það verður bullandi stemning og ég hvet alla sem hafa áhuga að mæta.“



Hljómsveitin mun m.a. spila á KEX Hosteli klukkan þrjú. Þeim tónleikum verður útvarpað á vefstöðinni KEXP frá Seattle. Vök fetar þannig í fótspor hljómsveitarinnar Of Monsters and Men sem vann á sínum tíma Músíktilraunir og spilaði á KEXP í tengslum við Iceland Airways.

„Já, að sjálfsögðu! Við yrðum meira en hamingjusöm ef okkur tækist það," segir Margrét spurð hvort stefnan sé að feta í fótspor Of Monsters and Men. „En stefnan er að koma breiðskífu í gang og byrja upptökur. Við ætlum að koma henni út í byrjun næsta árs.“

Þeir sem ekki vilja missa af tónleikum Vakar geta sótt Iceland Airwaves-app Símans, sem geymir upplýsingar um alla tónleika hátíðarinnar.

Hér fyrir ofan má sjá upptöku af því þegar Vök tók lagið Ég bíð þín í myndveri FM957 í gær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.