Tónlist

Britney hefur fælingarmátt

UE skrifar
Britney sendi nýlega frá sér lagið Work Bitch.
Britney sendi nýlega frá sér lagið Work Bitch.
Breski sjóherinn hefur nýtt sér tónlist Britney Spears í baráttu sinni við sómalska sjóræningja. Tilgáta sjóhersins er sú að lög hennar hafi á þá fælingarmátt vegna þess hversu innilega þeir hati vestræna menningu.

Von sjóhersins er sú að spili þeir tónlist Britney á fullum hljóðstyrk hreki þeir sjóræningjana í burtu frá austurströnd Afríku. Ekki fylgir sögunni hvort þessi aðferð hafi skilað tilætluðum árangri.

Britney Spears vinnur um þessar mundir að áttundu plötunni sinni sem á að heita Britney Jean. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.