Tónlist

Black vill spila með Bowie

Black Francis vill spila með David Bowie á tónleikaferð.
Black Francis vill spila með David Bowie á tónleikaferð. nordicphotos/getty
Black Francis, forsprakki bandarísku rokksveitarinnar Pixies, vill fara í tónleikaferð með David Bowie.

Bowie gaf út plötuna The Next Day fyrr á árinu en hefur ekkert fylgt henni eftir með tónleikahaldi. „Við ættum að fara á tónleikaferð með David Bowie,“ sagði Francis við Radio.com. „Við getum verið hljómsveitin hans, það væri svalt. Við getum hitað upp með því að spila okkar lög og svo kemur hann á svið og þá myndum við spila undir hjá honum.“

Fyrr í mánuðinum sagði trommari Pixies, Dave Lovering, að bassaleikarinn Kim Deal væri velkominn aftur í bandið hvenær sem hún vildi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.