Innlent

Netöryggissveit formlega tekin til starfa

Þorgils Jónsson og Jóhannes Stefánsson skrifar
Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri PFS
Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri PFS Mynd/ AFP

Netöryggissveit innan Póst- og fjarskiptastofnunar (PFS), CERT-ÍS tók formlega til starfa fyrir helgi.

Samkvæmt frétt á vef PFS er markmiðið með starfsemi netöryggissveitarinnar að fyrirbyggja og draga úr hættu á netárásum og öðrum öryggisatvikum í netumdæmi hennar og sporna við og lágmarka tjón af þeim sökum á ómissandi upplýsingainnviði samfélagsins.

Ómissandi upplýsingainnviðir eru til dæmis kerfi sem tryggja eiga þjóðaröryggi, almannaheill og margs konar öflun aðfanga en þeir verða nánar skilgreindir af ríkislögreglustjóra.

Netumdæmi sveitarinnar nær til að byrja með til fjarskiptafyrirtækja sem reka almenn fjarskiptanet og/eða veita aðgang að internetinu og internetþjónustu, en ekki til almennra notenda. „Það eru sambærilegar sveitir til í meira og minna öllum evrópuríkjum og flestum ríkjum heins og þær vinna saman flestar þessar sveitir að einhverju leyti að minnsta kosti," segir HRafnkell V. Gíslason, forstjóri PFS og bætir við: „við fáum heilmiklar upplýsingar um það sem er að gerast í íslenskum netum."

Einnig geta rekstraraðilar þeirra upplýsingakerfa sem teljast til ómissandi upplýsingainnviða gert þjónustusamninga við sveitina.

Netöryggissveitin mun greina og meta öryggisatvik innan netumdæmis síns, leiðbeina og eftir atvikum leiða viðbrögð og vera samhæfingaraðili þegar um stærri atvik er að ræða.

Hrafnkell segir netöryggissveitinni ekki ætlað að hafa eftirlit með efni á netinu: „Við horfum ekki á efnisinnihald hvort sem það er talið ólöglegt eða ósiðsamlegt, það er ekki hlutverk okkar. Við erum að stuðla að bættu almennu heilsufari netsins skulum við segja."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×