Fótbolti

Benitez hrósaði Torres

Torres fagnar með grímuna í kvöld.
Torres fagnar með grímuna í kvöld. Mynd/Nordic Photos/Getty
Rafa Benitez, stjóri Chelsea, var þokkalega sáttur við sigurinn á Rubin Kazan í Evrópudeild UEFA í kvöld.

"Þetta hefði getað verið betra en það er ekki hægt að breyta því núna. Vítið var harður dómur en það er lítið við því að gera. Við náðum samt að skora þriðja markið sem var mikilvægt. Seinni leikurinn verður samt mjög erfiður," sagði Benitez en hann var ánægður með landa sinn Torres sem skoraði tvö mörk í kvöld.

"Mörkin eru góð fyrir sjálfstraustið hans og ég er líka ánægður með vinnuframlagið hans. Ég er því mjög sáttur við hans framlag.

"Torres æfir alltaf mjög vel og því var bara spurning hvenær hann myndi skora. Vonandi skorar hann líka tvö mörk í næsta leik."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×