Samkomulagi náð á Bandaríkjaþingi Elísabet Hall skrifar 16. október 2013 19:00
Þingmenn bandarísku öldungadeildarinnar komust að samkomulagi um frumvarp til hækkunar á skuldaþaki ríkissjóðs í dag. Hlutabréfamarkaðir hafa beðið í mikilli óvissu eftir fréttum frá Washington. Æðstu menn demókrata og repúblikana hafa unnið að málinu síðustu daga en á morgun verður skuldaþak Bandaríkjanna, sem stendur nú í 16,9 trilljónum bandaríkjadollara, fullnýtt. Ljóst var að hækka þurfti skuldaþakið til að hægt væri að standa við fjárhagslegar skuldbindingar landsins. Skuldsetning bandaríkjanna hefur farið vaxandi og tilraunir til að finna lausn á málinu höfðu hingað til mistekist. Helsta deiluefni demókrata og repúblikanaflokkanna stóð um fjárframlög til nýja sjúkratryggingakerfisins, svokallað Obamacare, en flokkur Repúblikana neitaði að skrifa undir frumvarpið og voru það fulltrúar Teboðshreyfingarinnar svokölluðu sem gagnrýndu það hvað mest. Harry Reid, leiðtogi demókrata, sagði á þinginu að Bandaríkin hefðu í dag staðið á barmi stórslyss. Með því að semja um deilumálin í dag forða Bandaríkin sér frá tæknilegu gjaldþroti en þó aðeins til skamms tíma því fjárlögin munu einungis fjármagna opinberar stofnanir til 15. janúar á næsta ári og hækka skuldaþak ríkissjóðs til 7. febrúar. Fjölmargar stofnanir í Bandaríkjunum hafa verið lokaðar í þessum mánuði og starfsmenn sendir í launalaust leyfi. Með nýsamþykktu frumvarpi verður sett á nefnd sem mun vinna frekar að langtímalausn. Þegar fréttir af samkomulaginu bárust tóku hlutabréfamarkaðir við sér og hækkaði DOW vísitalan um meira 200 stig.
Mest lesið Appelsínugular viðvaranir og heiðar lokaðar Veður „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Innlent Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Innlent Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Innlent Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? Innlent Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Innlent Clinton lagður inn á sjúkrahús Erlent Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Erlent Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Erlent Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Innlent Fleiri fréttir Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Sænskur rappari skotinn til bana í bílastæðahúsi Skoða hvort stunguárás hafi átt að líkjast morðinu í New York Mangione líka ákærður af alríkissaksóknurum Saksóknari sagður óhæfur í síðasta málinu gegn Trump Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Danskt sjúkrahús kært til lögreglu vegna tilrauna á ungum drengjum Sjá meira