Lífið

Ég elskaði skrýtna, slappa magann minn

Söng- og leikkonan Jennifer Lopez þyngdist um 23 kíló þegar hún gekk með tvíburana Max og Emme sem nú eru orðnir fimm ára.

“Ég man eftir því að horfa á bakið, magann og rassinn minn stækka þegar ég var ólétt og hugsa með mér að ég ætti aldrei eftir að vera söm. Síðan man ég eftir að vera með skrýtinn, slappan maga rétt eftir að tvíburarnir fæddust og ég elskaði hann. Því ég vann fyrir þessum slappa maga,” segir Jennifer, sem er 43ja ára, í viðtali við tímaritið Stella.

Með fyrrverandi eiginmanni sínum, Marc Anthony.
Hún bætir við að það hafi tekið hana ár að koma skrokknum aftur í fyrra stand en skemmst er frá því að minnast að hún kláraði þríþraut sex mánuðum eftir fæðinguna.

Fór létt með þríþraut.
Bomba í bleiku.
Dragðu Tarotspil dagsins hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.