Tónlist

Sigraði í karókíkeppni háskólanna

„Ég hef ekki mikla reynslu af karókí en þetta var mjög gaman og ég verð grimm í karókíinu héðan í frá," segir Kristín Inga Jónsdóttir sem fór með sigur af hólmi í karókíkeppni háskólanna sem fram fór í Stúdentakjallaranum á fimmtudag. Hún söng lagið It's Raining Men og í verðlaun fær hún ferð fyrir þrjá á undankeppni Eurovision í Malmö þann 16. maí.

Kristín Inga kveðst spennt fyrir ferðinni til Svíþjóðar. „Ég var skiptinemi í Malmö á síðustu önn og það verður mjög gaman að skreppa aðeins „heim" og hitta vinina. Ég tek tvær vinkonur með mér út og svo eru tveir vinir til viðbótar á leiðinni út á eigin vegum, þannig við verðum þarna nokkur," útskýrir hún.

Kristín Inga söng meðal annars í barnakór Kársnesskóla undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur, var í gospelkór um stund og sigraði að auki í söngkeppni Samfés árið 2006. „Mér finnst mjög gaman að syngja. Ég er í háskólabandi núna og við komum fram á alls kyns háskólaviðburðum og erum stundum fengin til að koma fram á árshátíðum nemendafélaganna. Þetta er mikið árstríðuband."

Hún lýkur námi í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands í vor og er nú í óðaönn að leggja lokahönd á lokaritgerð sína. „Sem betur fer klára ég prófin snemma í ár þannig ég get skemmt mér áhyggjulaus úti í Malmö," segir hún að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.