Bílar

Enn eitt bílamerki Volkswagen

Verða bílamerkin enn fleiri á næstunni?
Verða bílamerkin enn fleiri á næstunni?
Stofnar nýtt ódýrt bílamerki eða kaupir Alfa Romeo.

Stjórnarformaður Volkswagen bílasamstæðunnar, Ferdinand Piech, lét hafa eftir sér nýlega að Volkswagen myndi bæta við að minnsta kosti einu bílamerki á næstunni. Það væri hluti af þeirri áætlun að verða stærsta bílafyrirtæki heims árið 2018 eða fyrr.

Volkswagen samstæðan samanstendur af 12 merkjum, þar af 8 merkjum sem framleiða fólksbíla. Þau eru Volkswagen, Audi, Skoda Seat, Porsche, Bentley, Lamborghini og Bugatti. Nýtt bílamerki gæti orðið glænýtt merki sem stæði fyrir mjög ódýra bíla og keppti við Dacia bílana sem Nissan á og Datsun merki Toyota. Nýtt bílamerki gæti einnig verið fólgið í kaupum Volkswagen á Alfa Romeo af Fiat.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×