Vonskuveður víða um land Magnús Hlynur Hreiðarsson og Jóhannes Stefánsson skrifar 5. júlí 2013 18:31 Björgunarsveitir voru kallaðar út til að tjóðra niður hátíðartjöld hjá UMFÍ. Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vonskuveður er nú víða um land, með miklum vind og úrkomu. Mótsgestir á unglingalandsmóti UMFÍ lentu í vandræðum vegna veðursins en tjöld á tjald- og hátíðarsvæði mótsins voru komin á fremsta hlunn með að fjúka um koll. Björgunarsveitir voru því kallaðar út til að aðstoða við að tjóðra niður tjöld á svæðinu. „Það eru mjög fá tjöld þarna því það er kolvitlaust veður. Björgunarsveitirnar hafa verið að aðstoða fólk við að hæla niður tjöld svo að þau fjúki ekki út í veður og vind," segir Magnús Hlynur Hreiðarsson fréttamaður sem er á svæðinu. „Tjöld frá íþróttafélögunum hafa losnað og það er verið að tjóðra þau niður. Þetta eru ömurlegar aðstæður og ömurlegt veður til að vera að halda svona mót og það er ekkert sem minnir á að í dag sé 5. júlí. Þetta minnir miklu frekar á vont haustveður," bætir hann við. Um 2000 keppendur taka þátt í mótinu. „Það eru fáir sem gista á tjaldsvæðinu vegna veðursins. Líkast til eru margir sem keyra á milli höfuðborgarsvæðisins og Selfoss í stað þess að gista í tjöldum," segir Magnús. „Það spáir slæmu veðri áfram um helgina, þó að sunnudagurinn verði bestur. Fyrir vikið er búið að flytja öll hátíðarhöld inn í íþróttahús Vallaskóla."
Mest lesið Tveggja stafa frost í kortunum og sundlaugar gætu þurft að loka Innlent Lygileg atburðarás í Landsbankanum Innlent Verið að athuga frekari þvingunaraðgerðir Innlent Sjálfstæðismönnum brugðið yfir mögulegri frestun landsfundar Innlent Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju vegna drengsins sem lést á Ítalíu Innlent Tíu ára drengur lést eftir bílslys á Ítalíu Erlent Framkvæmdastjóri Hagkaups furðar sig á heimsókn lögreglu Innlent Spennan magnast fyrir fundi sem óvænt á að fresta Innlent Jólagjafirnar í ár hittu beint í mark Innlent Rann á snjóruðningstæki og bíllinn óökuhæfur Innlent Fleiri fréttir Tveggja stafa frost í kortunum og sundlaugar gætu þurft að loka Jólagjafirnar í ár hittu beint í mark Framkvæmdastjóri Hagkaups furðar sig á heimsókn lögreglu Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju vegna drengsins sem lést á Ítalíu Verið að athuga frekari þvingunaraðgerðir Sjálfstæðismönnum brugðið yfir mögulegri frestun landsfundar Lygileg atburðarás í Landsbankanum Rann á snjóruðningstæki og bíllinn óökuhæfur Öryggisógn í Eystrasaltinu og óskiljanlegur „gjörningur“ lögreglu Tveir bílar rákust saman á brúnni við Fossála Veit vel að önnur kjör en laun þurfi að ræða Hætta leitinni í Meradölum Innan marka að kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Súðavíkurhlíð opin á ný Leit við Meradali í snælduvitlausu veðri Búið að opna Holtavörðuheiði á ný Þungar vikur framundan Skilaréttur neytenda ríkari ef varan er keypt á netinu Lögregla hafi hálfpartinn „hrökklast frá“ Hæstiréttur fer beint í búvörulagamálið Spennan magnast fyrir fundi sem óvænt á að fresta Grímuskylda og ósáttir vínsalar Holtavörðuheiði enn lokuð Reyndu að ræna hraðbanka Komu hesti til bjargar úr gjótu Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Snjóflóðahætta á Vestfjörðum og frumsýning Yermu Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sjá meira