Bílar

Porsche 918 handan við hornið

Spretturinn í hundrað tekur 2,9 sekúndur og hámarkshraðinn er 325 km/klst.

Ofurbíllinn Porsche 918 er líklega kominn á framleiðslustigið og sífellt fleiri upplýsingar eru að birtast um bílinn. Meðfylgjandi mynd má finna á vef þýsku einkaleyfastofunnar, sem bendir einmitt til þess að hann sé kominn í framleiðslu. Vitað er að 25 tilbúnir slíkir bílar eru í prófunum víða um heim.

Porsche 918 bíllinn er um margt óvenjulegur. Hann er svokallaður tvinnbíll (Plug-in Hybrid) sem hlaða má með heimilisrafmagni og hægt að aka honum 25 km eingöngu á rafmagni og á allt að 145 km hraða.

Bíllinn er 770 hestöfl sem fást úr 4,6 l. V8 vél sem skaffar 570 þeirra en rafhlöðurnar 200 hestöflum. Það skilar þessum straumlínulaga bíl í hundraðið á 2,9 sekúndum og hámarkshraðinn er 325 km. Eyðsla hans verður innan við 3 lítrar á hundraðið.

Í útliti er bíllinn þónokkuð frábrugðinn öðrum Porsche sportbílum, hann er miklu lengri, breiðari og lægri en t.d. 911 eða Boxter bílarnir. Verð bílsins verður eitthvað í nágrenni við 130 milljónir króna.

Porsche 918 glímir við kappakstursbraut



Fleiri fréttir

Sjá meira


×