Tónlist

Morrissey hættir við sjálfsævisögu

Morrissey er hættur við að gefa út sjálfsævisögu sína.
Morrissey er hættur við að gefa út sjálfsævisögu sína. Mynd/Getty
Morrissey, fyrrum söngvari The Smiths, hefur hætt við að gefa út sjálfsævisögu sína. Ástæðan er ósætti við útgefandann Penguin sem kom upp „á síðustu stundu“.

Bókin átti að fjalla um uppvöxt hans í Manchester og samband hans við hinn lagahöfund The Smiths, gítarleikarann Johnny Marr.

Samkvæmt yfirlýsingu á aðdáendasíðu Morrissey er söngvarinn að leita sér að nýjum útgefanda fyrir bókina.

Talsmaður útgáfunnar Penguin vildi ekkert tjá sig um málið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.