Tónlist

Hlaðin lofi

Sara McMahon skrifar
Fá frábæra dóma.
Fá frábæra dóma. Mynd/Hörður Sveinsson
Ný plata hljómsveitarinnar Hjaltalín, Enter 4, hefur hlotið frábæra dóma frá gagnrýnendum tímarita á borð við Clash, Sunday Times, Mojo og Q. Gagnrýnandi The Sunday Times segir meðal annars þetta um plötuna: „Þetta er ein magnaðasta plata sem ég hef nokkru sinni hlustað á. Sannkallað meistaraverk.“

Gagnrýnandi Mojo lýsir samsöng Sigríðar Thorlacius og Högna Egilssonar sem einkar skemmtilegum og gefur Enter 4 fjórar stjörnur líkt og gagnrýnandi Q. Hjaltalín er ein þeirra sveita er munu koma fram á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves í lok október.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.