Ekki of seint að byrja Bjarki Ármannsson skrifar 21. desember 2013 08:00 Kjartan valur með dóttur sinni. Fréttablaðið/Vilhelm
Formleg opnunarhátíð Hnefaleikafélags Kópavogs og bardagaíþróttafélagsins VBC í nýju húsnæði verður haldin milli 14 og 17 á laugardag. Til stendur að kynna starf félaganna tveggja á næsta vori. „Við erum að flytja inn í 800 fermetra húsnæði við Smiðjuveg 28 í Kópavogi,“ segir Kjartan Valur Guðmundsson, formaður Hnefaleikafélags Kópavogs. Að sögn Kjartans verður meðal annars boðið upp á sýningarglímur auk þess sem rapparinn Sesar A mun taka lagið ásamt félögum sínum. Einnig verða léttar veitingar í boði fæðubótarefnisframleiðandans Nutramino. Eins og fyrr segir munu félögin kynna námskeið sín og kennslu á opnunarhátíðinni og hvetur Kjartan sem flesta til að mæta. „Við í Hnefaleikafélaginu erum bara með hnefaleika, en VBC bíður til dæmis upp á brasilískt jiu-jitsu og „Freestyle Wrestling“, sem er svona eins og háskólaglíma,“ segir Kjartan um það sem er í boði. Hann segir félögin bjóða upp á námskeið fyrir fólk á öllum aldri. „Við erum með alveg frá hópum fyrir börn sem eru sjö, átta ára yfir í hópa fyrir konur um sextugt,“ segir Kjartan. „Sú elsta er 55 ára gömul amma, sem sýnir bara að það er aldrei of seint að byrja.“ Skráning fullorðsins fólks í bardagaíþróttir hefur aukist að undanförnu að sögn Kjartans. „Fólk er að fatta að þetta er með betri líkamsrækt sem maður fær,“ segir hann. „Í einum tíma er maður að brenna kannski 600-700 kaloríum.“
Mest lesið María Thelma og Steinar Thors héldu brúðkaup ársins Lífið Flautað á dúfurnar á Eyrarbakka og þær koma heim Lífið Fréttatía vikunnar: Pólitík, andlát og bíó Lífið „Hugleikið hver fær að stunda kynlíf og hver ekki“ Tónlist Er alltaf hrædd Lífið „Ég myndi aldrei fara í samband með einhverjum fávita“ Lífið Cheryl kvartar yfir fjölmiðlaumfjöllun um Liam Payne Lífið Faðir Payne las minningarorð og þakkaði aðdáendum Lífið Bar fyrir sig að hafa eitt sinn verið í strákabandi Lífið Rekinn af útgáfunni stuttu fyrir andlátið Lífið Fleiri fréttir Flautað á dúfurnar á Eyrarbakka og þær koma heim Faðir Payne las minningarorð og þakkaði aðdáendum Fréttatía vikunnar: Pólitík, andlát og bíó María Thelma og Steinar Thors héldu brúðkaup ársins Cheryl kvartar yfir fjölmiðlaumfjöllun um Liam Payne Bar fyrir sig að hafa eitt sinn verið í strákabandi Litfögur íbúð með mikinn karakter Haustförðunin sem hefur slegið í gegn á TikTok Þetta eru höfundar Áramótaskaupsins 2024 Níu ára og notar hestastudda sálfræðimeðferð til að komast yfir hamfarirnar Rekinn af útgáfunni stuttu fyrir andlátið Bingó í beinni á sunnudag Er alltaf hrædd One Direction sendir frá sér yfirlýsingu: „Við erum algjörlega miður okkar“ Stuðningur fjölskyldunnar ekki sjálfsagður Frumkvöðull í Detroit teknói í Gamla bíó í nóvember Þorvaldur Davíð og Hjálmar Örn í eina sæng Fjölskylda Liam Payne biður um andrými Malín Agla og Svavar eiga von á öðru barni „Ef ég á að vera hreinskilin þá var þetta bara svæsið einelti“ Símtal í neyðarlínu varpar ljósi á atburðarásina Harðlega gagnrýnd fyrir að birta myndir af líki Liam Payne Loka Sæbraut á laugardag vegna kvikmyndatöku Liljan er vinsælasta lagið á Dalvík Stjörnurnar minnast Liam Payne: „Þessar fréttir eru hrikalegar, ég er orðlaus“ „Ég myndi aldrei fara í samband með einhverjum fávita“ Liam Payne úr One Direction látinn Páll Óskar kveikti í kofanum Elskar að vera á níræðisaldri og eiga ungbarn Þurfti að missa þáttinn til að átta sig á næsta skrefi Sjá meira