Sport

RGIII verður lengi frá

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Robert Griffin þriðji, leikstjórnandi Washington Redskins, fór í aðgerð í dag vegna hnémeiðsla. Líklegt er að hann muni missa af upphafi næsta tímabils.

Greint var frá því í Bandaríkjunum í gærkvöldi að Griffin væri með slitið hliðarliðband í hné. Í aðgerðinni kom í ljós að gera þurfi við krossbandið líka. Það staðfesti faðir hans við fjölmiðla í dag.

„Krossbandið er ekki slitið en það er ekki nógu sterkt fyrir mann í hans íþrótt. Það þurfti því að laga það," sagði Robert Griffin annar.

Ljóst er að Griffin verður nokkra mánuði að jafna sig hið minnsta, jafnvel heilt ár. Nýtt tímabil hefst í september og er líklegt að hann muni missa af fyrstu umferðunum.

Griffin meiddist í leik gegn Seattle Seahawks í fyrstu umferð úrslitakeppni NFL-deildarinnar um helgina. Washington tapaði eftir að hafa komist 14-0 yfir í leiknum og er því úr leik.

Þess má þó geta að einn besti leikmaður deildarinnar, hlauparinn Adrian Peterson hjá Minnesota Vikings, náði undraverðum bata eftir krossbandsslit í lok desember árið 2011. Hann byrjaði að spila aftur aðeins átta mánuðum síðar og kemur nú sterklega til greina sem leikmaður ársins í deildinni.

Griffin sleit krossband í sama hné árið 2009 en kom sterkur til baka eftir meiðslin og vann Heisman-verðlaunin eftirsóttu í fyrra. Hann var valinn annar í nýliðavali NFL-deildarinnar í vor.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×