Fótbolti

Milan vill fá Kaká lánaðan

AC Milan tilkynnti í dag að félagið hefði hafið viðræður við Real Madrid um að fá Brasilíumanninn Kaká að láni.

Kaká hefur ekki náð sér á strik síðan hann fór frá Milan til Madrid. Hann hefur þess utan verið mikið meiddur.

Hinn þrítugi Kaká er ekki sáttur við þau tækifæri sem hann er að fá í Madrid og vill því komast frá félaginu.

Hann er goðsögn hjá Milan og ljóst að stuðningsmenn félagsins eru mjög spenntir fyrir því að hann aftur til AC Milan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×