Arsenal: Sjö töp í síðustu átta útileikjum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. mars 2013 06:30 Arsenal steinlá í fyrri leiknum á móti AC Milan á sama tíma í fyrra. Mynd/NordicPhotos/Getty
Það hefur ekki gengið vel hjá Arsenal síðustu ár þegar liðið er á útivelli í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Lærisveinar Arsene Wenger mæta til München í kvöld þar sem þeir mæta Bayern München í seinni leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Arsenal hefur tapað sjö af síðustu átta útileikjum sínum í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar og síðasti útisigur liðsins í þessum hluta Meistaradeildarinnar var á móti AC Milan í sextán liða úrslitum 2008. Arsenal vann þá 2-0 sigur á AC Milan á San Siro 4. mars 2008 en mörkin skoruðu þeir Cesc Fabregas og Emmanuel Adebayor. Abou Diaby og Bacary Sagna eru einu leikmenn Arsenal-liðsins í dag sem voru í byrjunarliðinu í þessum leik en Theo Walcott kom inn á sem varamaður á 71. mínútu. Walcott lagði upp mark Adebayor í leiknum. Arsenal hefur tapað þremur síðustu útileikjum sínum með markatölunni 2-11 en þess ber þó að geta að tveir þeirra hafa verið á móti Barcelona-liðinu. Alls hefur Arsenal-liðið tapað fimm útileikjum í röð í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar.Síðustu átta útileikir Arsenal í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar: 16 liða úrslit 2012: AC Milan - Arsenal 4-0 16 liða úrslit 2011: Barcelona - Arsenal 3-1 8 liða úrslit 2010: Barcelona - Arsenal 4-1 16 liða úrslit 2010: Porto - Arsenal 2-1 Undanúrslit 2009: Manchester United - Arsenal 1-0 8 liða úrslit 2009: Villarreal - Arsenal 1-1 16 liða úrslit 2009: Roma - Arsenal 1-0 8 liða úrslit 2008: Liverpool - Arsenal 4-2Samantekt: 8 leikir 0 sigrar 1 jafntefli 7 töp Markatalan: 6-20
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Hveragerði fær stimpilinn frá Mosó Íslenski boltinn Sjáðu fyrstu mörk Orra Steins í treyju Real Sociedad Fótbolti Valsmenn neituðu að veita viðtöl Körfubolti „Ábyrgðin er mín“ Fótbolti Lélegasta lið sögunnar: „Augljóslega er þetta ömurlegt“ Sport Orri með tvennu á Spáni: „Fyrsta stóra kvöldið þitt“ Fótbolti Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Enski boltinn Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Enski boltinn Óska eftir handtökum vegna herferðar gegn Vinicius Fótbolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu deild karla og málin gerð upp í Bestu mörkunum Sport Fleiri fréttir Í beinni: Þróttur - Þór/KA | Þróttarar í leit að fyrsta sigrinum Í beinni: FH - Breiðablik | Kapphlaupið um titilinn heldur áfram Í beinni: KR - Fram | Rúnar snýr aftur á Meistaravelli Í beinni: Vestri - HK | Risaleikur fyrir vestan Vilja framlengja við nærri fertugan Ronaldo „Sannfærður um að við séum að einblína á röngu hlutina“ Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Sjáðu fyrstu mörk Orra Steins í treyju Real Sociedad Vonbrigða tímabil Vals getur skorið úr um hvar titillinn endar Nökkvi Þeyr kom að marki og Messi bjargaði stigi „Ábyrgðin er mín“ Hveragerði fær stimpilinn frá Mosó KSÍ sækir um í Afrekssjóð ÍSÍ fyrir næsta ár Óska eftir handtökum vegna herferðar gegn Vinicius Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Allt í molum hjá Barcelona í fyrsta tapinu Sara lagði upp í fyrsta leik í Sádi-Arabíu Stöðvuðu Bayern sem missti Kane meiddan af velli Orri með tvennu á Spáni: „Fyrsta stóra kvöldið þitt“ Jóhann á sigurbraut í Sádi-Arabíu KR upp um deild og Haukar tóku við bikarnum „Þetta er bara besta móment lífs míns“ Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn „Ég bara hágrét í leikslok“ „Þetta endar eins og þetta á að enda“ Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Einstakt afrek Brentford dugði skammt en Everton vann loksins Arsenal skaut Refina í blálokin Palmer skoraði fernu í fyrri hálfleik Liverpool á toppnum Sjá meira
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn