Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kom heim frá Kína í gærdag og hefur fundað stíft síðan þá vegna FBI-málsins svokallaða. Hann hefur meðal annars setið fundi með Sigríði J. Friðjónsdóttur, ríkissaksóknara sem og Haraldi Johannessen, ríkislögreglustjóra.
Málið er hið sérkennilegasta en Kristinn Hrafnsson, talsmaður Wikileaks ljóstraði því upp í viðtalið við Kastljós fyrir um einni og hálfri viku síðan, að fulltrúar alríkislögreglunnar, FBI, hefðu komið hingað til lands til þess að rannsaka uppljóstrunarsamtökin.
Ögmundur staðfesti frásögn Kristins samdægurs og sagði þá að ráðuneytið hefði þá þegar gert fulltrúunum ljóst að þeir væru ekki velkomnir hér á landi þegar ráðherrann varð var við nærveru þeirra. Áður höfðu fulltrúarnir farið fram á samstarf við yfirvöld hér á landi sem var svo slitið að skipun ráðherrans þegar hann komst að því að þeir væru staddir hér á landi.
Málið tók þó sérkennilega beygju þegar ríkislögreglustjóri og saksóknari gáfu frá sér sameiginlega yfirlýsingu um ástæðu þess að fulltrúarnir komu hingað til lands. Það mun hafa verið vegna þess að ungur maður, kallaður Siggi hakkari, gaf sig fram í bandaríska sendiráðinu og hélt því fram að hann byggi yfir upplýsingum um Wikileaks og yfirvofandi tölvuárás á stjórnarráðið, sem hann raunar sagðist í viðtali við BBC hafa brotist inn í sjálfur áratug áður og nálgast upplýsingar úr tölvum hússins.
Ríkissaksóknari og lögreglustjóri héldu því fram að ákvörðun um að heimila FBI mönnunum að koma hingað til lands, hefði verið tekin í samráði við fulltrúa innanríkisráðuneytisins. Það er þó ekki fyrr en fulltrúar alríkislögreglunnar komu með einkaþotu hingað til lands í ágúst árið 2011 sem afstaða ráðuneytisins til FBI mannanna breyttist algjörlega, allavega samkvæmt ríkislögreglustjóra og saksóknara.
Tilkynning embættis ríkislögreglustjóra og saksóknara kom tæplega viku eftir að Kristinn og Ögmundur höfðu tjáð sig um málið í fjölmiðlum. Þá var Ögmundur staddur í Kína og gaf þá þegar út að hann hefði ekki haft neina vitneskju um fyrirhugaða komu FBI liðanna til Íslands, ólíkt því sem skilja mætti af sameiginlegu yfirlýsingunni.
Athygli vakti að alríkisfulltrúarnir voru hér á landi fmm dögum eftir að samstarfi við þá var slitið. Á fimmta degi var þeim svo gert grein fyrir því að nærveru þeirra var ekki óskað. Þá höfðu þeir rætt við Sigga hakkara daglega á mismunandi hótelum víða um Reykjavík. Spurningar þeirra snérust nær eingöngu um Wikileaks, ekki yfirvofandi tölvuárás, sem aldrei varð eftir því sem Vísir kemst næst. Hafi árásin átt sér stað hefur hún ekki verið alvarleg. Og ekki er útilokað að henni hafi verið haldið leyndri.
Eftir að fulltrúunum var gerð grein fyrir því að nærveru þeirra væri ekki óskað snéru þeir aftur til Washington. Þeir tóku aftur á móti Sigga með sér, en hann var nítján ára gamall þegar viðtölin fóru fram. Þar var rætt áfram við hann í um fjóra daga. Sjálfur sagði hann í samtali við Vísi að hann hefði verið beðinn um að hitta Julian Assange vopnaður földum hljóðnema. Því neitaði Siggi.
Raunar virðist Siggi aldrei hafa haft réttarstöðu grunaðs manns í þessu ferli. Vísir ræddi við hann í síðustu viku og þá sagði hann að hann hefði sjálfur afþakkað nærveru fulltrúa innanríkisráðherra í viðtölum sínum við Bandaríkjamenn. Ástæðan var sú að hann óttaðist að viðtölin myndu fréttast.
Sjálfur segist hann hafa hitt fulltrúa alríkislögreglunnar í nokkur skipti eftir að hann ræddi við þá á Íslandi og í Bandaríkjunum. Meðal annars í Danmörku. Þá fékk hann 4000 dollara greidda fyrir harða diska úr tölvum eins og Vísir hefur áður greint frá. Sjálfur sagðist Siggi hafa verið á föstum launum hjá alríkislögreglunni.
Siggi, sem er rétt rúmlega tvítugur, á þó í harðri rimmu við Wikileaks, enda hafa samtökin kært hann fyrir fjárdrátt. Siggi er sakaður um að hafa stolið 6 milljónum króna af Wikileaks í gegnum bolasölu samtakanna. Það mál liggur á borði hjá ákæruvaldinu hér á landi.
Þá hefur Siggi verið kærður fyrir önnur brot, mörg hver vegna fjárdráttar.
Alþingi fjallar um málið í fyrramálið en þá verður haldinn sameiginlegur fundur í stjórnskipunar- og eftirlitsnefn og allsherjar- og menntamálanefnd. Fundurinn hefst klukkan hálf ellefu en meðal þeirra sem hafa verið kallaðir fyrir nefndina eru Kristinn Hrafnsson, talsmaður Wikileaks, ríkissaksóknari, ríkislögreglustjóri og svo innanríkisráðherra.
Fyrir fundinn mun Ögmundur greina frá stöðu mála á ríkisstjórnarfundi sem verður haldinn í fyrramálið. Hann mun ekki tjá sig um málið fyrr en eftir sameiginlega fundinn á morgun samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu.