Tíska og hönnun

TREND – Hvítir skór

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Hvítir skór geta verið erfiðir og ópraktískir að vetri til, en hafa engu að síður náð miklum vinsældum upp á síðkastið. Margar stjörnur sem þekktar eru fyrir fallegan klæðaburð hafa látið sjá sig í slíkum skóm síðustu vikur, hvort sem það er við fínni tilefni eins og á tískusýningum og í samkvæmum, eða við daglegt amstur. Hvítu skórnir eru greinilega komnir til að vera og fylgja okkur inn í sumarið.

Kim Karsashian klæddist hvítu frá toppi til táar í Óskarspartýi hjá Elton John.
Zoe Saldana paraði hvíta skó við röndóttan kjól.
Þessi tískuskvísa var mynduð af götustílsljósmyndara á tískuvikunni í New York. Henni tekst afar vel til með samsetningu.
Solange Knowles var flott í hvítum skóm og doppóttri dragt.
Anja Rubik stormaði um tískuvikuna í New York í hvítum skóm.
Carine Roitfeld, fyrrverandi ritstýra franska Vogue, var í svörtum sokkabuxum og hvítum skóm í snjónum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×