Skemmtilegast klæddu á Golden Globe Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 6. janúar 2025 11:31 Litadýrð, munstur og gleði einkenndi fataval stjarnanna í gær. SAMSETT Það var mikið um litadýrð á rauða dreglinum í gær þegar stórstjörnur heimsins komu saman á Golden Globe verðlaunahátíðinni í Hollywood. Tískuunnendur fylgdust spenntir með fatavali stjarnanna sem fellur auðvitað alltaf mis vel í kramið en það var ekki laust við að tískustraumar frá árinu 2010 hafi gert vart við sig.
Hér má sjá nokkrar af eftirtektaverðustu stjörnum kvöldsins: Demi Moore Drottningin Demi Moore glæsileg í Armani Privé.Jeff Kravitz/FilmMagic Stórstjarnan Demi Moore vann til sinna fyrstu verðlauna í gærkvöldi og var vel að því komin fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Substance. Hún naut sín vel í sérhönnuðum ermalausum Armani Privé galakjól í kampavínslit og valdi silfrað skart við. Moore, sem er 62 ára, skein skært með glansandi hárið niður en hún vann þessa tískusnilld með stílistanum Brad Goreski. Elle Fanning Elle Fanning skein skært í Balmain.Michael Buckner/GG2025/Penske Media via Getty Images Hin 26 ára gamla Elle Fanning skaust ung upp á stjörnuhimininn og hefur leikið hvert stórhlutverkið á fætur öðru. Hún hefur sömuleiðis gjarnan vakið athygli fyrir tískuvit sitt en þó að stíll hennar sé afslappaður og stílhreinn er hún dugleg að taka áhættu. Hún rokkaði sérsniðinn Balmain satín ljósgylltan síðkjól með hlébarðamynstri yfir brjóstin. Er um að ræða endurgerð á sögulegum kjól tískuhúsins frá árinu 1953. Kerry Washington Kerry Washington var algjör bleik bomba í Balenciaga.Amy Sussman/Getty Images Litirnir fengu að leika lausum hala í gær og sterki bleiki liturinn fékk svo sannarlega sitt pláss hjá hinni stórglæsilegu Kerry Washington. Sniðið var heldur óhefðbundið og skemmtilegt og var eins og kjóllinn væri vafinn utan um hana en hann er auðvitað frá óhefðbundna tískuhúsinu Balienciaga. Washington var svo með svarta uppháa dömuhanska við, með hvíta stóra perlulokka og dökka augnförðun. Það hefði ekki komið á óvart að sjá kjól undir innblæstri frá þessum, þó töluvert styttri, á MH balli árið 2010. Zendaya Zendaya stórglæsileg í Louis Vuitton.Taylor Hill/FilmMagic Zendaya bar af á dreglinum í gær í silkimjúkum Louis Vuitton brún-appelsínugulum galakjól í skóm við úr sömu litapallettu. Hárið hennar er algjörlega stórkostlega fallegt og minnir greiðslan á gamlan Hollywood glamúr sem á í fallegu samtali við demantshálsmenið. Brava! Andrew Scott Andrew Scott stórglæsilegur pastelblár draumur!Amy Sussman/Getty Images Leikarinn Andrew Scott er best klæddi karlmaður kvöldsins! Æðislega gaman að sjá karlmann velja áberandi lit og það á allar flíkurnar, bláir skór hefðu þó jafnvel sett punktinn yfir i-ið. Jakkafötin eru frá bresku tískugyðjunni Vivienne Westwood en þetta goðsagnakennda merki er þekkt fyrir allt nema leiðinleg föt! Cynthia Erivo Cynthia Erivo stórstjarna í Louis Vuitton.Michael Buckner/GG2025/Penske Media via Getty Images Wicked drottningin, ofursöngkonan og leikkonan Cynthia Erivo skein skært í óhefðbundnum svörtum og silfruðum síðkjól frá hinu virta tískuhúsi Louis Vuitton. Kjóllinn er dramatískur, fleginn niður að nafla og fullkomlega sniðinn á stjörnuna. Nicole Kidman Nicole Kidman með tryllta greiðslu í glansandi Balenciaga.Jeff Kravitz/FilmMagic Ástralska undrið Nicole Kidman, stórstjarna með meiru, heldur áfram að rokka Balenciaga og er hér í kjól sem minnir óumflýjanlega á 2000's tískutímabilið. Hárgreiðslan er stórkostleg og Kidman er þrusu flott með fiðrildaeyrnalokka við. Jeremy Strong Jeremy Strong hefur allavega gaman að tískunni!Taylor Hill/FilmMagic Leikarinn Jerermy Strong, þekktur fyrir hlutverk sitt í Succession, er ekkert að taka lífinu eða tískunni of alvarlega og hefur mögulega fundið þessi flauels jakkaföt í fyrstu búð sem hann fór í. Hatturinn við gerir klæðaburðinn enn skemmtilegri og mintugræni liturinn klæðir karlinn. Það þarf að hafa gaman að þessu! Heidi Klum Heidi Klum sæt og sumarleg í Maria Lucia Hohan.Kevin Mazur/Getty Images Ofurfyrirsætan Heidi Klum er eins og alvöru álfaprinsessa í sumarlegum grænum kjól sem væri hinn fullkomni kjóll fyrir sumarbrúðkaup hjá bestu vinkonu þinni. Með góða klauf í léttum opnum skóm við, glæsilegt demantshálsmen og silfraða tösku við. Keltie Knight Keltie Knight undir innblæstri 2010 og Gossið Girl.Kevin Mazur/Getty Images Það er eins og sjónvarpsstjarnan og metsöluhöfundurinn Keltie Knight hafi fengið að kíkja í fataskápinn fyrir hina sívinsælu Gossip Girl þætti sem nutu mikilla vinsælda fyrir rúmum áratugi síðan. Gegnsætt og silfrað og skemmtilegt frá tískuhúsinu Antonios Couture.
Golden Globe-verðlaunin Tíska og hönnun Hollywood Tengdar fréttir Zaldana, Brody, Moore og Culkin meðal sigurvegara kvöldsins Það var mikið um dýrðir þegar Golden Globe verðlaunahátíðin fór fram í gær en meðal sigurvegara kvöldsins voru Demi Moore, Zoe Saldana, Adrien Brody og Kieran Culkin. 6. janúar 2025 08:13 Mest lesið Getur enn þann dag í dag ekki horft á barnarúm Lífið Getuleysi á stóra sviðinu Gagnrýni Af og frá að Iceguys taki þátt í Söngvakeppninni Lífið Júlí og Ágúst keppa í Söngvakeppninni í febrúar Lífið Mjög tilfinningaríkt að vera með kraftaverk í höndunum Lífið Gervifullnægingar og lélegt kynlíf tilheyri 2024 Lífið Laufey ástfangin í eitt ár Lífið Kynntist eiginkonunni á swingklúbbi Lífið Íris Ósk seldi hönnunarhöllina á 230 milljónir Lífið Opið samband fer úrskeiðis Lífið Fleiri fréttir Skemmtilegast klæddu á Golden Globe Halla í peysufötum langömmu sinnar Skemmtileg tískuslys og eftirminnileg jólaföt Stjörnum prýtt hönnunar húllumhæ í Húrra Fagnaði tvítugsafmælinu í Vivienne Westwood Opnuðu sjóðheitt hönnunarstúdíó með stæl Best klæddu Íslendingarnir 2024 Sænsk tískudrottning sögð kúga starfsfólk sitt Húrrandi stemning í opnun Húrra Rúbínrauðu skór Dóróteu seldust á 3,8 milljarða Seldist upp daginn eftir kosningasigur Kristrúnar Logi Pedro með hönnunarlínu: „Ég verð að gera þetta sjálfur“ Djörf á dreglinum Laxahattar komnir aftur í tísku hjá háhyrningum Steldu stílnum af Samfylkingar-Rögnu Sjá meira
Zaldana, Brody, Moore og Culkin meðal sigurvegara kvöldsins Það var mikið um dýrðir þegar Golden Globe verðlaunahátíðin fór fram í gær en meðal sigurvegara kvöldsins voru Demi Moore, Zoe Saldana, Adrien Brody og Kieran Culkin. 6. janúar 2025 08:13