Bílar

Innrásin frá Kína hefst með Qoros

Finnur Thorlacius skrifar
Stjórnendur Qoros koma frá BMW, General Motors, Jaguar/Land Rover, Saab og Volvo.

Kínversk bílafyrirtæki bíða þess með óþreyju að hefja innflutning til Evrópu og Bandaríkjanna. Eitt þeirra virðist þó komið einna lengst í þeim áformum, þrátt fyrir ungan aldur. Það er Qoros, sem aðeins er 6 ára gamalt fyrirtæki.

Qoros sýnir þrjár útfærslur Qoros 3 bíls síns á bílasýningunni í Genf sem nú stendur yfir. Qoros áformar að hefja sölu á þessum bíl í Evrópu í byrjun næsta árs. Bílar Qoros virðist að sögn erlendra bílablaðamanna vera hin ágætasta smíði og innanrými þeirra minnir á Volkswagen bíla og er þar ekki leiðum að líkjast.

Qoros státar sig mjög af uppruna stjórnenda fyrirtækisins, en þeir komu frá BMW, General Motors, Jaguar/Land Rover, Saab og Volvo og benda á að þeir þekki vel til þess hvað þarf að uppfylla til að geta boðið bíla í hinum vestræna heimi.

Qoros 3 verður með 1,6 l. bensínvél með forþjöppu tengda við annaðhvort beiskiptingu eða tveggja kúplinga sjálfskiptingu. Auk hefðbundins sedan bíls á sýningunni er önnur útfærsla Qoros 3 á sýningunni tvinnbíll og sú þriðja langbaksgerð hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×