Deila um hvort Voyager-1 hafi yfirgefið sólkerfið eða ekki 22. mars 2013 06:05
Deila er komin upp meðal stjarnfræðinga um hvort geimfarið Voyager-1 hafi í raun yfirgefið sólkerfi okkar eða ekki. Í nýrri rannsókn byggðri á upplýsingum frá geimfarinu kemst Bill Webber prófessor við ríkisháskólann í Nýju Mexíkó að þeirri niðurstöðu að Voyager-1 hafi yfirgefið sólkerfið eða hið svokallaða heliohvolf í fyrra. Webber segir að raunar megi dagsetja nákvæmlega hvenær geimfarið yfirgaf sólkerfið eða þann 25. ágúst s.l. Prófessorinn byggir þetta á því að mælingar Voyager-1 hafi frá þessum degi sýnt mun meiri geimgeislun en geislun frá sólinni. Bandaríska geimvísindastofnunin NASA er ósammála þessu en stofnunin fjármagnaði rannsókn prófessorsins. NASA, sem stjórnar geimfarinu, segir að Voyager-1 sé enn innan marka sólkerfisins. Hvað sem þessum deilum líður er Voyager eitt best heppnaða geimskot NASA frá upphafi. Voyager-1 var skotið á loft árið1977 og átti geimfarið að kanna ystu pláneturnar í sólkerfinu. Því verkefni lauk fyrir fjölda ára en áfram heldur geimfarið að senda upplýsingar. Það er statt í 18 milljarða kílómeta fjarlægð frá jörðinni.
Mest lesið „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ Innlent Val Kilmer er látinn Lífið Bann gegn einkaþotum og þyrlum samþykkt Innlent „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Innlent Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Innlent Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Innlent Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Innlent Engin virkni á gossprungunni en glóð logar í hrauninu Innlent Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum Innlent „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Innlent Fleiri fréttir Lýsa yfir vikulangri þjóðarsorg Regnbogafánar bannaðir í skólum og ríkisstofnunum Færri ánægðir með Trump og efnahagsmálin Sakar Rússa um tugi þúsunda stríðsglæpa „Ekki að grínast“ um þriðja kjörtímabilið Einn sagður hafa drepið hina tvo Hafa enn ekki náð utan um skaðann í Mjanmar ESB sagt íhuga að útvatna loftslagsmarkmið sín Morð í Svíþjóð ekki eins fá í áratug Le Pen sakfelld fyrir fjársvik og bannað að bjóða sig fram til forseta Fordæma árás á sjúkraliða Þrír fundust látnir í Noregi „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Trump „mjög reiður“ út í Pútín Þýsk geimflaug hrapaði eftir hálfa mínútu Erfitt að átta sig á áformum Trumps „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Fundu fólk í rústunum sextíu klukkustundum eftir skjálftann Kærir Musk til hæstaréttar vegna milljónagjafa til kjósenda „Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Leita enn og vara við miklum skorti á sjúkravörum Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi Hamasliðar tilbúnir að frelsa gísla fyrir vopnahlé Mette Frederiksen heldur til Grænlands Hundruð þúsunda mótmæla og 1900 handteknir Fleiri en 1600 látnir í Mjanmar Fyrrverandi kærasta Tate sakar hann um kynferðisbrot Heimsókn Vance óviðeigandi og óviðunandi Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Tala látinna komin yfir þúsund Sjá meira