Golf

Adam Scott vann Masters eftir umspil

Adam Scott vann Masters.
Adam Scott vann Masters.
Ástralinn Adam Scott varð í kvöld fyrsti Ástralinn sem vinnur Masters-mótið í golfi. Hann tryggði sér sigur á annarri umspilsholu gegn Argentínumanninum Angel Cabrera. Hann setti niður um fjögurra metra pútt fyrir sigri. Pútt Cabrera stoppaði upp við holuna.

Þetta er fyrsti risatitill Scott. Þetta er alls ekki fyrst risatitill kylfusveinsins hans, Steve Williams, sem var kylfusveinn Tiger Woods til margra ára. Það var Bubba Watson, sigurvegarinn frá því í fyrra, sem klæddi Scott í hinn fræga græna jakka sem alla kylfinga dreymir um.

Flestir héldu að Scott hefði tryggt sér sigur með glæsilegum fugli á 18. holu. Langt pútt sem lak ofan í holuna.

Cabrera var fyrir vikið undir mikilli pressu á lokaholunni. Hann stóð undir henni. Átti stórkostlegt innáhögg á 18. holunni og setti svo púttið niður. Mögnuð tilþrif hjá báðum kylfingum og umspil fram undan.

Umspilið var magnað. Kylfingarnir hrikalega jafnir en hið stórkostlega pútt hjá Scott tryggði honum sigurinn. Hér að neðan má lesa beina textalýsingu frá umspilinu.

Staðan:

Adam Scott  - 10

Angel Cabrera  -9

Jason Day  -7

Tiger Woods  -5

Marc Leishman  -5

Brandt Snedeker  -5

Thorbjörn Olesen  -4

Sergio Garcia  -3

Lee Westwood  -3

Matt Kuchar  -3

Textalýsing frá umspili Masters:

23.38: Allt undir hjá Scott. Hann skoðar púttið vel með Steve Williams en það er um 4 metrar. Scott gerir sér lítið fyrir og neglir púttið ofan í. Frábært pútt og hann vinnur Masters-mótið með stæl. Þvílíkt mót.

23.36: Cabrera púttar á undan enda fjær. Púttið er fyrir fugli og það stoppar upp við holuna. Grátlegt fyrir Cabrera. Þetta var svo nálægt. Mokar svo ofan í. Scott getur sett niður og unnið.

23.34: Scott undir pressu og höggið stórkostlegt. Ofar á flöt og nær holu. Pútt Cabrera þó þægilegra enda nánast alveg upp í móti á meðan Scott er í smá halla. Spennan magnast og það er farið að verða svolítið dimmt. Því er spáð að þeir geti í mesta lagi spilað eina holu í viðbót.

23.32: 10. brautin heitir Cammellia og hefur verið afdrifarík í gegnum árin. Cabrera er styttri þó svo höggið með járninu hafi verið langt. Munar líklega ekki nema svona tveim metrum.  Það rignir á kylfinga líkt og í allan dag. Rigningin þó meiri en framan af degi. Cabrera blótar högginu sem er furðulegt því það er frábært. Um 4 metrum frá pinna. Setur pressu á Scott.

23.28: Scott byrjar aftur á teig. Hann notar þrjú tré. Þetta er par 4 hola. Scott með frábært högg og á besta stað. Cabrera með járn og hann er líka á braut þó svo hann virtist skalla boltann. Magnað.

23.26: Cabrera setur sitt stutta pútt auðveldlega niður. Þeir þurfa nú að fara á 10. holu.

23.25: Scott setur niður meters pútt.

23.24: Scott aðeins of laus en samt í góðri stöðu. Er aðeins lengra frá en á að pútta þessu niður eins og Cabrera.

23.23: Þriðja höggið frá Cabrera er stórkostlegt. Sleikir holuna. Millimetrum frá sigri. Púttar auðveldlega næst. Scott verður að vanda sig.

23.20: Cabrera er líka of stuttur. Nokkir sentimetrar á milli boltanna. Cabrera þó fjær og slær næst. Hann var mjög ósáttur og blótaði eftir höggið. Þvílík spenna.

23.19: Scott er fjær og tekur annað höggið sitt á undan. Höggið er aðeins of stutt. Nær upp á flöt en lekur aftur út af.

23.17: Steve Williams, fyrrum kylfusveinn Tiger Woods, er kylfusveinn Scott. Margir aðdáenda Woods halda því ekki með Scott. Þeim er meinilla við Williams eftir að hann lét frá sér vafasöm ummæli eftir að Woods rak hann.

23.15. Scott tekur sitt upphafshögg fyrst. Það er mjög gott og endar á besta stað. Cabrera er pollslakur og á líka frábært upphafshögg. Þeir eru nánast hlið við hlið.

23.12: Það er aðeins farið að skyggja þannig að umspilið getur ekki staðið yfir endalaust. Kylfingarnir eru komnir út á teig.

23.05: Bráðabaninn fer þannig fram að þeir spila 18. holu. Ef úrslit nást ekki þá fara þeir á 10. holu og svo koll af kolli.

23.01: Þetta er búið að vera ótrúlegt kvöld. Cabrera sýndi stáltaugar undir ótrúlegri pressu. Hann vann mótið árið 2009. Það er pressa á Scott því Ástrali hefur aldrei áður unnið mótið. Ekki einu sinni Greg Norman tókst það.




Tengdar fréttir

Cabrera og Snedeker leiða Masters | Tiger á smá von

Argentínumaðurinn Angel Cabrera og Bandaríkjamaðurinn Brandt Snedeker eru efstir og jafnir á Masters-mótinu í golfi fyrir lokahringinn. Þeir eru báðir á samtals sjö höggum undir pari. Báðir kylfingar léku á þrem höggum undir pari í dag líkt og Adam Scott sem er í þriðja sæti á sex höggum undir pari.

Garcia nýtur augnabliksins

Spánverjinn Sergio Garcia og Ástralinn Marc Leishman eru efstir og jafnir að loknum fyrsta keppnisdegi á Masters mótinu í golfi.

Þessir fóru holu í höggi | Myndband

Tveir kylfingar fóru holu í höggi í par þrjú keppninni sem fór fram í gær. Þessi glæsilegu högg má sjá í meðfylgjandi myndbandi.

Strákurinn spilaði of hægt og fékk refsihögg

Hinn fjórtán ára gamli Guan Tianlang hefur vakið mikla athygli á Mastersmótinu en hann er yngsti keppandi sögunnar á þessu fornfræga móti. Kínverski táningurinn kláraði annan hringinn á Masters-mótinu á þremur höggum yfir pari og er nú á fjórum höggum yfir eftir 36 holur.

Tiger slapp með skrekkinn

Tiger Woods var ekki vísað úr Masters-mótinu fyrir ólöglegt dropp á hringnum í gær. Hann fær aftur á móti tveggja högga víti frá dómaranefnd mótsins.

Haldið í hefðirnar á Augusta

Fyrsta Masters-mótið fór fram á Augusta National-golfvellinum fyrir 79 árum og mótið hefur síðan alltaf verið eitt af stærstu mótum ársins.

Bestu tilþrif fyrsta keppnisdags

Phil Mickelson, Jamie Donaldson og hinn fjórtán ára Tianlang Guan buðu upp á bestu tilþrifin á fyrsta keppnisdegi á Masters í gær.

Heppnin ekki með Tiger á fimmtándu

Tiger Woods er í 7. sæti og þremur höggum á eftir efsta manni þegar Mastersmótið í golfi er hálfnað. Tiger byrjaði vel á öðrum hring en hafði ekki heppnina með sér á fimmtándu holunni.

Örlög Tigers ráðast síðar í dag

Svo gæti farið að Tiger Woods verði rekinn úr Masters-mótinu. Því er haldið fram að hann hafi tekið ólöglegt högg á 15. brautinni í gær.

Tiger sættir sig við refsinguna

Tiger Woods slapp við frávísun af Masters-mótinu fyrr í dag. Honum var þó refsað en hann fékk tveggja högga refsingu fyrir ólöglegt dropp sem þó var ekki viljandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×