Golf

Garcia nýtur augnabliksins

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Garcia þakkar fyrir sig á Augusta í gær.
Garcia þakkar fyrir sig á Augusta í gær. Nordicphotos/Getty
Spánverjinn Sergio Garcia og Ástralinn Marc Leishman eru efstir og jafnir að loknum fyrsta keppnisdegi á Masters mótinu í golfi.

Garcia spilaði gallalaust golf í gær og tapaði ekki holu á hringnum. Hann fékk sex fugla, fjóra á fyrri níu og tvo á þeim síðari. Spánverjinn sem hefur aldrei sigrað á risamóti þrátt fyrir að hafa tekið þátt í 54 slíkum er til alls líklegur.

„Þetta er auðvitað ekki uppáhaldsvöllurinn minn," sagði Garcia á blaðamannafundi í nótt. „Þetta var einn af þessum góðu dögum. Við skulum njóta þess á meðan varir."

Aðspurður hvort hann meinti að honum fyndist engin press vera á sér og hann ætlaði bara að njóta þess að spila sagði Spánverjinn:

„Í hvert skipti sem ég hef leik á móti er markmiðið að spila eins vel og ég get og eiga möguleika á sigri," sagði Garcia. Það sama sé uppi á teningnum á Masters.

„Þetta var ánægjulegur dagur og vonandi verða næstu þrír af sama toga. Við skulum sjá til hvað gerist á sunnudagskvöldið."

Leishman lét skolla á fyrstu holu ekki slá sig útaf laginu. Hann nældi í tvo fugla á fyrri níu og fimm á þeim síðari. Ástralinn 29 ára er þó ekki talinn líklegur til afreka en þetta er aðeins í annað skiptið sem hann keppir á Masters.

Dustin Johnson á Augusta vellinum í gær.Nordicphotos/Getty
Dustin Johnson byrjaði hringinn á flugi og var kominn tvo undir par eftir tvær holur. Hann bætti tveimur fuglum í safnið og fékk svo örn á 13. holu vallarins sem er par 5.

Bandaríkjamaðurinn lauk keppni á fimm höggum undir pari þökk sé skolla á 17. holunni.

David Lynn, Rickie Fowler, Gonzalo Fernandez-Castano, Trevor Immelman, gamla brýnið Fred Couples og Matt Kuchar deila svo fjórða sætinu á fjórum undir pari.

Tiger Woods fékk þrjá fugla og einn skolla á hringnum. Hann er á tveimur undir pari samanlagt í 13. sæti.

Staðan í mótinu.

Bein útsending frá öðrum keppnisdegi á Masters hefst á Stöð 2 Sport & HD klukkan 19 í kvöld.

Tiger undirbýr sig fyrir pútt í gær.Nordicphotos/Getty

Tengdar fréttir

Búist við gífurlega hröðum flötum

Þorsteinn Hallgrímsson og myndatökumaðurinn Friðrik Þór Halldórsson hafa undanfarna daga dvalið í Georgíu og fylgst með aðdraganda Masters-mótsins á Augusta National-vellinum.

Þessir fóru holu í höggi | Myndband

Tveir kylfingar fóru holu í höggi í par þrjú keppninni sem fór fram í gær. Þessi glæsilegu högg má sjá í meðfylgjandi myndbandi.

Tiger eða Dustin vinna Masters

Ólafur Björn Loftsson telur að Tiger Woods fari með sigur í fimmta skipti á Masters. Fjölmiðlamaðurinn Heimir Karlsson telur hins vegar að Dustin Johnson muni koma, sjá og sigra.

Klæðist heilsuhraustur Tiger græna jakkanum í fimmta sinn?

Tiger Woods er sá kylfingur sem flestir veðja á í aðdraganda Masters-mótsins í ár. Hann er á ný í efsta sæti heimslistans í golfi eftir að hafa unnið þrjú mót í PGA-mótaröðinni í ár og er í góðu formi fyrir fyrsta risamót ársins.

14 ára undrabarn leikur á Masters

Fjórtán ára gamall drengur frá Kína mun skrá nafn sitt í metabækurnar á Masters-mótinu í ár þegar hann verður yngsti kylfingurinn í sögu mótsins til að taka þátt.

Notar "brautartré á sterum“ sem dræver

Phil Mickelson mun ekki nota hefðbundinn dræver á Masters í ár heldur "brautartré á sterum“ eins og hann orðaði það sjálfur á blaðamannafundi fyrir mótið.

Bauð upp á kjúkling

Ein af hefðum Masters-mótsins er kvöldverður meistaranna en þar koma saman fyrrverandi sigurvegarar í mótinu og snæða saman.

Golfið er alltaf númer eitt

Bubba Watson vann Masters-mótið í fyrra og leitaði sér ráða um hvernig best væri að vinna með alla athyglina frá aðdáendum og fjölmiðlum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×