Handbolti

Jón þjálfar ÍBV með Svavari

Jón Gunnlaugur Viggósson.
Jón Gunnlaugur Viggósson.
Jón Gunnlaugur Viggósson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs ÍBV í handknattleik. Hann mun stýra liðinu með Svavari Vignissyni.

Jón skrifaði undir tveggja ára samning við Eyjamenn en hann kemur til félagsins frá FH þar sem hann hefur þjálfað kvennaliðið í Krikanum.

Jón, sem er sonur Viggós Sigurðssonar fyrrum landsliðsþjálfara, hóf þjálfaraferil sinn hjá Þrótti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×