Bíó og sjónvarp

Leitað að leikstjóra næstu James Bond-myndar

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Sam Mendes (t.v.) og Daniel Craig við tökur Skyfall.
Sam Mendes (t.v.) og Daniel Craig við tökur Skyfall.

Kvikmyndin Skyfall sló í gegn á síðasta ári og leita Sony og Eon, framleiðslufyrirtæki kvikmyndanna um James Bond, að leikstjóra næstu myndar um hetjuna. Variety greinir frá.

Ekkert hefur enn verið ákveðið, en nöfn sem nefnd hafa verið eru Nicolas Winding Refn (Drive), Ang Lee (Life of Pi), Tom Hooper (The King's Speech) og Shane Black (Iron Man 3).

Heimildarmenn Variety segja töluverðan tíma geta liðið þar til ákvörðun verður tekin, en samningur leikarans Daniels Craig felur í sér tvær myndir til viðbótar. Hann er þó til skoðunar og eru leiddar líkur að því að mögulega muni stjarnan hafa eitthvað að segja um leikstjóravalið.

Þá hefur Svarthöfði eftir Deadline að enn sé reynt að fá leikstjórann Sam Mendes til að endurtaka leikinn, en hann leikstýrði Skyfall og voru framleiðendur seríunnar himinlifandi með árangurinn.

Handritshöfundur Skyfall, John Logan, hefur samþykkt að skrifa handritið, en fyrirhugað er að frumsýna næstu mynd árið 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.