Sport

Sendi aðdáanda þakkarbréf

RG III.
RG III. vísir/getty

Robert Griffin III, eða RG III, er ein vinsælasta stjarnan í bandarísku íþróttalífi og hann kann svo sannarlega að skora stig hjá aðdáendum sínum.

Leikmaðurinn sló í gegn sem leikstjórnandi hjá Washington Redksins síðasta vetur og er þegar kominn á auglýsingasamning hjá sumum af stærstu fyrirtækjum heims.

RG III er að fara að gifta sig í byrjun júli og eftir að þau tíðindi láku út hefur hann fengið fjölda gjafa frá aðdáendum sínum.

Hann er augljóslega þakklátur fyrir það því hann sendi í það minnsta einum þeirra þakkarkort. Undir það skrifa bæði leikmaðurinn og unnusta hans.

Það var Keith Elgin sem fékk þakkarkortið og hann birti mynd af því á Twitteræ. Mynd af kortinu má sjá hér  að ofan.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×