Fótbolti

Hummels: Við vorum orðnir þreyttir í lokin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mats Hummels.
Mats Hummels. Mynd/Nordic Photos/Getty

Mats Hummels spilaði í miðri vörn Borussia Dortmund í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í kvöld en var ekki hundrað prósent og það sást. Hann var til dæmis víðsfjarri þegar Arjen Robben skoraði sigurmark Bayern mínútu fyrir leikslok.

„Þetta var mjög jafn leikur en Bayern átti sigurinn skilinn. Þeir voru betra liðið í seinni hálfleiknum," sagði Mats Hummels eftir leikinn.

„Við vorum betra liðið fyrstu 25 mínúturnar en náðum ekki að skora markið sem við þurftum svo á að halda," sagði Hummels.

„Við vorum orðnir þreyttir á lokamínútunum og þess vegna fengu þeir bikarinn en við ekki. Það er ekkert erfiðara en að sætta sig við tap í svona leik," sagði Hummels.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×