Nóbelsverðlaunahafi segir það rétt að gera hlé á ESB viðræðum 23. maí 2013 09:10
Edmund Phelps Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði segir að það sé rétt ákvörðun hjá Íslendingum að gera hlé á aðildarviðræðunum að Evrópusambandinu. Phelps segir að sú ákvörðun muni verja Ísland gegn mörgum áhættum sem ESB stendur nú frammi fyrir. Þetta kemur fram í frétt hjá Bloomberg fréttaveitunni þar sem rætt er við Nóbelsverðlaunahafann. Phelps segir að hann telji að enginn sé í alvöru að reyna að komast inn í ESB sem stendur. „Umsókn um aðild er eins og að segja: þetta er fallegt hús, það er að vísu að brenna í augnablikinu, en við ættum að kaupa það,“ segir Phelps. Í fréttinni er haft eftir Bjarna Benediktssyni nýjum fjármálaráðherra Íslands, að helst efnahagsvandamál Íslands séu gjaldeyrishöftin. Phelps segir hinsvegar að aðild að evrusvæðinu muni ekki vera nein vernd gegn því útflæði fjármagns sem höftin koma í veg fyrir í augnablikinu.Ættu að huga að öðrum gjaldmiðlum Phelps segir það glapræði fyrir Íslendinga að halda áfram að reyna að komast inn í ESB og taka upp evruna. Ísland væri betur sett með gjaldmiðlasamstarfi við önnur lönd og nefnir Phelps norsku krónuna og kanadíska dollarann í þeim efnum. „Það er vissulega vert að skoða málið,“ segir Phelps. „Þegar spurningin er komin fram er eðlilegt að skoða aðra möguleika. Hvað með Ástralíu eða Sviss? Og í framhjáhlaupi, hvað með bandaríska dollarann? Ég hef séð verri gjaldmiðla í heiminum,“ segir Phelps sem telur að það sé ekkert verra að tengja krónuna við bandaríkjadollar en kanadadollarann.
Mest lesið Icelandair skrúfar fyrir fría gosið Viðskipti innlent Andstæðingar Carbfix í Hafnarfirði reyna að hafa áhrif á Húsvíkinga Viðskipti innlent Danskir seðlar teknir úr umferð og verða ógildir Neytendur Gervigreindin: Reksturinn á svaka flugi og fjörið þó rétt að byrja Atvinnulíf Reiknivél sem sýnir áhrif breytingar á samsköttun Neytendur Ríflega tveggja milljarða afgangur á Akureyri Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu Viðskipti innlent Kauphallir rétta úr kútnum Viðskipti erlent Penninn leggst í miklar breytingar Viðskipti innlent Hækkar tolla á Kína aftur í 145 prósent Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hafa samþykkt tillögu um uppgjör ríkisins á bréfum ÍL-sjóðs Icelandair skrúfar fyrir fría gosið Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Sýknaður í Ímon-málinu tíu árum seinna Bein útsending: Vorfundur RARIK - Hreyfum samfélagið til framtíðar Milljarðaafgangur og besta niðurstaðan í sautján ár Enginn sjái eftir því á dánarbeðinum að hafa ekki unnið meira Mögulega leikflétta og eða viðbrögð við lækkunum Miðlunarlónin standa öll mun betur en á horfðist Bein útsending: Hlýtur Carbfix Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna? Penninn leggst í miklar breytingar Ríflega tveggja milljarða afgangur á Akureyri Kauphöllin réttir við sér Spá aukinni verðbólgu Andstæðingar Carbfix í Hafnarfirði reyna að hafa áhrif á Húsvíkinga Tollahækkanirnar geti þjappað Evrópu og Kína betur saman Börn fá gefins Barnabónus með helstu nauðsynjun Árni Oddur tekur við formennsku Starfsmenn ríkisins þiggja boð ríkisins Bein útsending: SFF dagurinn - Breyttur heimur ÍL-sjóður: LV gengur að tilboði ríkisins Ísland brotlegt í pitsaostamálinu Hitastigið í hagkerfinu hærra en áður var talið Enn ein eldrauð opnun Fjögur ráðin í nýtt gagna- og gervigreindarteymi Varist Jóhanna Vigdís til liðs við Keystrike Röntgenveldið tekur yfir rekstur Bullseye Arctic Adventures kaupir Happy Campers Lækkanir halda áfram Leigja út fjórar vélar og taka eina á leigu Sjá meira