Lífið

Bieber fer út í geim

Poppprinsinn Justin Bieber og umboðsmaður hans, Scooter Braun, ætla að skella sér út í geim með Virgin Galactic að sögn stofnanda Virgin, Richard Branson.

“Frábært að heyra að Justin Bieber og Scooter Braun séu nýjustu geimfarar Virgin Galactic. Til hamingju, sjáumst þarna uppi!” skrifar Richard á Twitter-síðu sína.

Bieber kann að lifa lífinu.

Justin, sem er aðeins nítján ára, hefur oft talað um að fara út í geim og meira að segja að hann vilji halda tónleika þar – hugmynd sem NASA leist afar vel á.

Geimprins.

Justin er ekki eina stjarnan sem hyggur á geimferð því meðal annarra frægra sem hafa pantað sér far með Virgin Galactic eru leikararnir Ashton Kutcher og Leonardo DiCaprio.

Richard Branson er ánægður með nýjasta geimfarann.

Dragðu Tarotspil dagsins hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.