Sport

Hernandez verður handtekinn fljótlega

Aaron Hernandez.
Aaron Hernandez.
Samkvæmt heimildum bandarískra fjölmiðla virðast það ekki vera spurning um hvort heldur hvenær Aaron Hernandez, leikmaður New England Patriots, verður handtekinn út af morðmáli.

Félagi Hernandez fannst látinn nálægt heimili hans á dögunum en hann var skotinn í hnakkann. Í fyrstu var Hernandez ekki grunaður. Það hefur þó mikið breyst á síðustu dögum.

Lögreglan leitaði á heimili Hernandez í annað sinn í gær og var í þrjá og hálfan tíma heima hjá honum í gær. Lögreglan var með tvo hunda með sér.

Er lögreglan yfirgaf svæðið var hún með fimmtán poka af sönnunargögnum.

Hernandez eyðilagði símann sinn og öryggiskerfið í húsinu. Lögreglan telur hann vera að eyðileggja sönnungargögn.

Hernandez átti frábært tímabil með Patriots í fyrra en fátt bendir til þess að hann verði að spila amerískan fótbolta næstu árin.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×