Viðskipti innlent

Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks samábyrg fyrir breytingum

Íbúðalánasjóður.
Íbúðalánasjóður.
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks var samábyrg fyrir breytingum innan Íbúðalánasjóðs árið 2004 að því er fram kemur í niðurstöðu rannsóknarnefndar Alþingis um Íbúðalánasjóð.

Þar segir að þó hafi verið um þær pólitískur ágreiningur milli flokkanna og jafnvel innan þeirra.

„Það veikti þá umgjörð og festu sem hefði þurft að vera til staðar við innleiðinguna. Þessi pólitíski ágreiningur endurspeglaðist í mismunandi afstöðu ráðuneyta og einnig annarra stofnana og veikti eftirlitið með Íbúðalánasjóði,“ að því er fram kemur í skýrslunni en þar segir einnig að ekki hafi verið hægt að túlka breytingar á sjóðnum öðruvísi en sem markaðssókn.

Í skýrslunni segir að ríkisábyrgð hafi verið notuð til þess að laða að meðal annars erlent áhættufé til þess að lækka vexti. Uppgreiðsluáhætta Íbúðalánasjóðs var stóraukin og var þar farið gegn ráðleggingum sérfræðinga.

Greiðslubyrði útlána var lækkuð og lánsupphæðir og lánshlutföll hækkuð. Íbúðalánasjóði var gert mun erfiðara en áður að bregðast við samkeppni á markaðnum einmitt þegar búast mátti við að hún myndi aukast enda höfðu ýmsir bent sjóðnum á að viðskiptabankarnir ætluðu sér aukna hlutdeild á fasteignalánamarkaðnum.

Þá segir einnig að við innleiðingu kerfisbreytinga á Íbúðalánasjóði árið 2004 sem fólust í upptöku íbúðabréfakerfisins og 90% veðhlutfalls, myndaðist nokkur fjarlægð á milli nánustu samstarfsmanna félagsmálaráðherrans, (sem var Árni Magnússon, Framsóknarflokknum), sem voru m.a. starfsmenn ÍLS, og starfsmanna ráðuneytisins. Það hafði óheppilegar afleiðingar að því er fram kemur í skýrslunni.


Tengdar fréttir

Skuldabréfaskiptin ein verstu mistökin

Rannsóknarnefnd Alþingis um starsemi Íbúðalánasjóðs segir í kolsvartri skýrslu um sjóðinn að ein verstu mistökin sem voru gerð hjá sjóðnum hafi verið þegar íbúðabréfakerfið var tekið upp árið0 2004 og húsbréfakerfið lagt niður.

Mistök Íbúðalánasjóðs kostað þjóðina milljarða

Í ágripi um helstu niðurstöður rannsóknarnefndar um Íbúðalánasjóð segir að rannsókn þeirra hafi leitt í ljós margvísleg mistök, sum mjög alvarleg, sem hafa kostað þjóðina milljarða króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×