Viðskipti innlent

Mistök Íbúðalánasjóðs kostað þjóðina milljarða

Rannsóknarnefnd Íbúðalánasjóðs.
Rannsóknarnefnd Íbúðalánasjóðs.
Í ágripi um helstu niðurstöður rannsóknarnefndar um Íbúðalánasjóð segir að rannsókn þeirra hafi leitt í ljós margvísleg mistök, sum mjög alvarleg - mistök sem hafa kostað þjóðina milljarða króna. Þá segir í niðurstöðunni að mistökin megi meðal annars rekja til vanþekkingar innan sjóðsins og meðal þeirra sem tengdust honum.

Svo segir orðrétt: „Þá verður ekki hjá því komist að nefna að ekki bættu heldur pólitísk áhrif og hagsmunatengsl úr skák.“

Einnig kemur fram að ekki sér fyrir endann á kostnaðinum sem hefur þegar orðið vegna mistaka innan sjóðsins.

Verið er að kynna skýrsluna nú á blaðamannafundi rannsóknarnefndarinnnar í Oddfellow-húsinu.

Rannsóknarnefnd Alþingis um Íbúðalánasjóð var skipuð í september 2011 en í nefndinni sátu Sigurður Hallur Stefánsson, fyrrum héraðsdómari, Kirstín Flygenring hagfræðingur og Jón Þorvaldur Heiðarsson lektor í viðskiptafræðideild í Háskólanum á Akureyri. 

Nefndin var skipuð til að rannsaka starfsemi sjóðsins á árunum 2004 til 2010 en afdrifaríkar ákvarðanir í stefnu sjóðsins voru teknar á þeim tíma.

Greint verður frekar frá málinu á Vísi síðar í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×