Jóhanna segir upp áskrift að Herðubreið Jakob Bjarnar skrifar 18. júlí 2013 23:57 Samfylkingarfólk, ekki síst Jóhanna Sigurðardóttir, er langt í frá ánægt með sína Herðubreið og Karl Th. Birgisson núna.
Nýútkomið tölublað tímaritsins Herðubreiðar, hefur þegar valdið verulegum usla í herbúðum Samfylkingarfólks, svo mjög að Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur sagt upp áskriftinni. Karl Th. Birgisson ritstjóri greinir frá þessu á Facebooksíðu sinni nú undir miðnætti. „Æi, ósköp er lífið nú stundum soldið trist. Harðjaxlinn hún Jóhanna var að segja upp áskriftinni að Herðubreið. Ég ætla nú samt að senda henni næsta hefti líka. Og þarnæsta. Við þurfum nebbla öll að tala saman,“ skrifar Karl Th. Birgisson ritstjóri í stöðuuppfærslu á Facebook nú undir miðnættið. Herðubreið er, eða hefur verið, beint eða óbeint málgagn Samfylkingarinnar. Í nýju tölublaði má lesa úttekt Karls á stöðu Samfylkingarinnar og brokkgengri kosningabaráttu. Eyjan heldur því fram að úttektin muni valda usla meðal Samfylkingarfólks og það er nú þegar komið á daginn. „Líklegt má telja að grein hans sé liður í uppgjöri innan flokksins, uppgjöri við versta kosningaósigur flokks í lýðveldissögunni, flokks sem er í raun alveg sundraður um þessar mundir og í sárum,“ segir á Eyjunni sem vitnar í grein Karls þar sem segir: „Árni Páll er baráttumaður og lagði alla krafta sína frá hausti í prófkjör í nóvember og umsvifalaust að því loknu í formannskjör. Þegar ljóst var á landsfundi í febrúar að hann hafði náð kjöri sem formaður má segja að hann hafi komið lafmóður í mark. Hann hafði náð takmarkinu, en virtist vera þrotinn að orku og örendi – og hugmyndaflugi. Kosningabaráttan bar þessa glögg merki.“Fyrr frysi í helju en Jóhanna láti Árna Páli eftir forsætisráðuneytið Og seinna í greinninni beinir Karl spjótum sínum að Jóhönnu og segir hreint út að hún hafi reynst Árna Páli verri en engin: „En á þessum tímapunkti var samt enn hægt að gera nýjan formann sterkari og stöndugri í baráttunni framundan. Það var mögulegt með því að hann tæki við forsætisráðuneytinu, með þeim myndugleik, aðgangi að fjölmiðlum og ótal tækifærum sem því embætti fylgja allajafna. Þessi hugmynd komst á kreik, en náði aldrei flugi. Allir vissu að fyrr frysi í helju en að Jóhanna Sigurðardóttir léti Árna Páli eftir forsætisráðuneytið. Og því réð ekkert nema persónuleg afstaða hennar til hans. Nýi formaðurinn hefði þurft að leggja í mjög erfiðan leiðangur gegn fráfarandi formanni til að ráðherraskiptin hefðu getað orðið að veruleika. Það var ávísun á blóðug viðskipti þar sem enginn færi ósár frá leik.“Hrútasamkoma á Herðubreið Ekki aðeins er það svo að greining Karls á brösugri kosningabaráttu í Herðubreið ýfi burstir á Samfylkingarfólki. Þannig skrifar Ása Richardsdóttir, áhrifakona í Samfylkingunni, í kvöld á sinn Facebook-vegg: „Tímaritið Herðubreið, í ritstjórn Karl Th Birgisson (ef). ....var að koma inn um lúguna. Í því eru 18 greinar, prósar, eftirmæli og ritdómar eftir 11 karlmenn og eina konu, ritdómur eftir Anna Sigrún Baldursdóttir (þf). Ég hef ekki lesið efnið enn og kasta því ekki rýrð á það en er skapi næst að gera það ekki. Hvernig getið þið tekið þátt í slíkri hrútasamkomu, Árni Páll Árnason, Eiríkur Hjálmarsson, Davíð Þór Jónsson, Björn Valur Gíslason og fleiri? Ekki gefa mér þá afsökun að konur hafi ekki fengist til að skrifa......“
Mest lesið „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ Innlent Bann gegn einkaþotum og þyrlum samþykkt Innlent Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Innlent Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Innlent „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Innlent Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Innlent Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum Innlent „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Innlent Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ Innlent Ekið á gangandi vegfaranda Innlent Fleiri fréttir Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Bann gegn einkaþotum og þyrlum samþykkt Sækja um leyfi fyrir Kvíslatunguvirkjun Annasamur sólarhringur hjá björgunarsveit Patreksfjarðar Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Hafnar ásökunum um byssuat og uppgefnir íbúar undir Steinafjalli „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Fordæmir atvikið í Grindavík Fara fram á að Mangione fái dauðarefsinguna Ekið á gangandi vegfaranda Beindi byssunni yfir höfuð björgunarsveitarmanns Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ „Þessi staður er ákaflega óheppilegur“ Beita öllum brögðum til að minnka tjón ef hraunið nær bænum Grindvíkingur ógnaði björgunarsveitarfólki með skotvopni „Minni kraftur í þessu samanborið við fyrri gos“ Myndir: Eldgos ógnar Grindavík Snýst allt um að tryggja öryggi fólks Gos við bæjarmörkin: Aukafréttatími í hádeginu Ein af dekkstu sviðsmyndunum að raungerast Björgunarsveitarfólki ógnað við rýmingu Eldgosið séð úr lofti Vonast til að hefja störf í Grindavík strax á morgun Sterkari merki en fyrir síðustu eldgos Bein útsending: Ræða skýrslu fjármálastöðugleikanefndar Gestir vaktir og Bláa lónið rýmt í snatri Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Sjá meira