Fótbolti

Maicon mun skrifa undir hjá Roma

Stefán Árni Pálsson skrifar
Maicon í leik með Manchester City.
Maicon í leik með Manchester City. Mynd / Getty Images
Hinn brasilíski Maicon hefur gengið til liðs við AS Roma á Ítalíu en félagið hefur gengið frá kaupunum við Manchester City þar sem leikmaðurinn lék á síðasta keppnistímabili.

Þessi 31 árs bakvörður kom til Manchester City frá ítalska félaginu Inter Milan en náði sér aldrei á strik með þeim ensku.

Leikmaðurinn var aðeins í byrjunarliði City fjórum sinnum á síðasta tímabili.

Maicon er lentur í Rómarborg og mun skrifa undir samning við félagið á næsta sólahring.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×