Lífið

Dissar Kanye West

X Factor-dómarinn Sharon Osbourne vandar rapparanum Kanye West ekki kveðjurnar í viðtali við vefsíðuna Daily Beast.

“Mér finnst hann leiðinlegur. Hann er meðalmyndarlegur maður með miðlungs hæfileika. En hann er frábær sölumaður. Hann ætti að selja bíla því þá myndu þeir rjúka út. Hann er sinn mesti aðdáandi,” segir Sharon. Þá tjáir hún sig líka um ungstirnið Justin Bieber.

Sharon segir það sem hún hugsar.
“Þetta er lítill strákur með stóra drauma. Hann er sætur, stelpurnar elska hann og hann vill vera slæmi strákurinn en hann er álíka slæmur og kettlingur. Ég held að hann sé týndur. Ég held að hann átti sig ekki á því að hann er hvítur en ekki svartur.”

Ekki hrifin af Kanye.
Segir Justin vera týndan.
Dragðu Tarotspil dagsins hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×