Lífið

Kynjahlutverkunum snúið við í umdeildu myndbandi

Kristjana Arnarsdóttir skrifar
Myndband við lagið Blurred Lines með söngvaranum Robin Thicke hefur vakið hörð viðbrögð víða um heim.

Myndbandið þykir niðrandi í garð kvenna en textinn er sagður fjalla um stúlku sem vill stunda kynlíf en þorir ekki að segja það.

Nú hafa drengirnir í Mod Carousel sent frá sér myndband við lagið þar sem kynjahlutverkunum er snúið við.

Þeir fengu þeir söngkonurnar Caela Bailey, Sydni Devereux og Dalishu Philips til að taka að sér hlutverk Robin Thicke, T.I. og Pharrell Williams.

Afraksturinn má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×