Tónlist

Koma fram í fyrsta sinn sem hjón

Sara McMahon skrifar
Eddie, Einar og Svala skipa hljómsveitina Steed Lord.
Eddie, Einar og Svala skipa hljómsveitina Steed Lord.
Danssveitin Steed Lord spilar á Innipúkanum á föstudag. Þetta eru fyrstu tónleikar sveitarinnar eftir að Svala Björgvinsdóttir, söngkona, og Einar Egilsson gengu í hið heilaga, en þau giftu sig í Landakotskirkju á laugardaginn var.

Hljómsveitin kom síðast fram á Íslandi á útgáfutónleikum sínum í desember og segist Svala hlakka mikið til þess að spila aftur fyrir íslenska tónlistarunnendur.

„Það verður æði að spila aftur á Íslandi, og þá sérstaklega sem nýgift hjón,“ segir söngkonan glaðlega.

Meðlimir sveitarinnar, sem telur einnig Eddie Egilsson, bróður Einars, heldur aftur til Los Angeles þann 6. ágúst.  „Þá tekur aftur við vinna. Ég er meðal annars að fara að kynna nýju fatalínuna mína og svo erum við að spila á fullu út um allt, semja og taka upp nýja plötu. Það er fullt af spennandi verkefnum í gangi,“ segir Svala að lokum.

Tónleikar Steed Lord fara fram á Faktorý á föstudagskvöldinu. Miða má nálgast hér.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.