Mynd Balta tekur inn milljarð á fyrsta degi Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 3. ágúst 2013 16:57 Baltasar Kormákur ásamt fjölskyldu sinni þegar hún var forsýnd í New York. Mynd/gettyimagesnordiphotos
Kvikmynd Baltasars Kormáks, 2 guns, hefur halað inn 10 milljónum dollara síðan hún var frumsýnd seint á fimmtudagskvöld. Eru það litlar 1.184 milljónir íslenskra króna. Hún skaust því rakleiðis á topp "Box office" listans, en á hann raðast myndir eftir því hversu háum fjárhæðum þær safna í sölu aðgangsmiða. Þetta telst góður árangur hjá myndinni sem kostaði um 60 milljónir dollara í framleiðslu. Er þetta í samræmi við hagnað frumsýninga mynda aðalleikarans Denzel Washington og í hærri kantinum fyrir myndir með félaga hans í myndinni, Mark Wahlberg. Til samanburðar má geta þess að fyrri mynd Baltasars, Contraband, sem einnig skartaði Mark Wahlberg í aðalhlutverki, græddi 8,6 milljónir dollara sinn fyrsta sýningardag. Ítarleg úttekt er á sölutölum fyrri hluta helgarinnar á Viðskiptablaðinu Forbes. Því er spáð að myndin muni hafa hagnast um 30 milljónir dollara þegar helgin er á enda.
Mest lesið Óvæntur glaðningur í veggjunum Lífið Frumsýning á Vísi: Hafa aldrei gengið eins langt og í Alheimsdraumnum Lífið Heitustu trendin árið 2025 Lífið Með þvottaklemmu á sér í beinni frá eldunum Lífið Heimili Hanks rétt slapp Lífið Bönnuð innan 12 af ástæðu Lífið Tíu góð andlitskrem í vetrarkuldann Lífið Glæsihús í Kópavogi með stórbrotnu útsýni Lífið Kynferðislega ófullnægður forstjóri finnur sér ungan graðfola Gagnrýni Patrik í hálfrar milljón króna skíðagalla Tíska og hönnun Fleiri fréttir Þakkar fleiru en Demi Moore fyrir langþráð metár Vestfirski hryllingstryllirinn frumsýndur vestanhafs Snerting skaut Deadpool ref fyrir rass 2024 Lively í hart: „Þú veist að við getum grafið hvern sem er“ Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Frumsýning á Vísi: Fyrsta stiklan úr hryllingstrylli af Vestfjörðum Paul Mescal leiki nafna sinn McCartney „Þannig það yrði bara til Leynilögga 1 og 3“ Emilia Pérez og The Bear með flestar tilnefningar til Golden Globe „Hversu góð tök hefur þú á Rúrik?“ Sjá meira